Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar

Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs

Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka að sér fjölþætt starf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Sviðsstjóri veitir sviðinu faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og lög og reglugerðir er varða starfsemina. Sviðsstjóri leiðir umbætur ferla og úrlausn verkefna til aukinnar skilvirkni og þjónustu sviðsins. Töluverð uppbygging innviða er fyrirhuguð í sveitarfélaginu og mun viðkomandi leiða þau verkefni auk virkrar þátttöku í uppbyggingar- og þróunarverkefnum.

Þetta er spennandi tækifæri fyrir stjórnanda sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun ört vaxandi sveitarfélags og leiða mikilvæg innviðaverkefni á komandi árum.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Veitir sviðinu faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega forystu og ber ábyrgð á starfsemi þess
    • Ábyrgð á starfs- fjárhags- og framkvæmdaáætlun sviðsins
    • Ábyrgð á rekstri og viðhaldi mannvirkja í eigu sveitarfélagsins sem og útboðum og gerð samninga í tengslum við rekstur mannvirkja
    • Samskipti við bæjarstjórn, bæjarráð, fastanefndir sveitarfélagsins á vettvangi málaflokkanna, önnur sveitarfélög, stofnanir og aðra hagaðila
    • Kemur að mótun og framfylgir stefnu sveitarfélagsins í málaflokkum sviðsins
    • Vinnur að úrbótaverkefnum á sviðinu
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
    • Þekking eða reynsla af verkefnum á sviði skipulags-, byggingar-, framkvæmda- eða umhverfismála er æskileg
    • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og störfum hjá sveitarfélagi er kostur
    • Reynsla af stjórnun, stefnumótun og mannauðsmálum er kostur
    • Reynsla af gerð fjárhagsáætlana og rekstrarstjórnun er æskileg
    • Framúrskarandi leiðtoga-, samstarfs- og samskiptahæfni
    • Skipulagsfærni og forgangsröðun verkefna
    • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
    • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
    • Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænni þróun og umbótum á verkferlum
    • Metnaður til að leiða breytingar og ná árangri í starfi
    Auglýsing birt2. júlí 2026
    Umsóknarfrestur15. júlí 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Mjög góð
    EnskaEnska
    Nauðsyn
    Meðalhæfni
    Staðsetning
    Iðndalur 2, 190 Vogar
    Starfstegund
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar