

Skipulags- og/eða byggingarfulltrúi
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skipulags- og/eða byggingarfulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt verkefni við umsjón skipulags- og byggingarmála sveitarfélagsins. Starfið verður mótað í samræmi við hæfni og áhuga þess sem ráðinn verður – viðkomandi getur því sinnt skipulagsmálum, byggingarmálum eða hvoru tveggja.
Þetta er tækifæri til að koma inn á spennandi tímum í sögu Grundarfjarðarbæjar, þar sem mörg og fjölbreytt verkefni eru framundan. Hér er tækifæri til að þróa starfið og setja mark sitt á uppbyggingu sveitarfélagsins til framtíðar – eitthvað sem sjaldan gefst í stærri sveitarfélögum.
Grundarfjarðarbær hlaut 334 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu til þess að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir sem nota náttúrulega ferla til að meðhöndla regnvatn ofanjarðar, leiða það örugga leið frá fjalli til sjávar. Þetta á að draga úr álagi á fráveitukerfið og auka líffræðilega fjölbreytni.
Á sviði skipulagsmála:
• Skipulagsmál sveitarfélagsins og eftirlit með skipulagsáætlunum
• Umsagnir um deiliskipulag og skipulagsbreytingar
• Samráð við íbúa, lögaðila og opinberar stofnanir
• Þátttaka í langtímaáætlanagerð og uppbyggingarverkefnum
Á sviði byggingarmála:
• Útgáfa byggingarleyfa og eftirlit með framkvæmdum
• Úttektir og skoðanir á nýbyggingum og endurbótum
• Ráðgjöf til íbúa og verktaka um byggingarreglur
• Skráning og skjalastjórnun byggingarmála
• Háskólamenntun í skipulagsfræði, landslagsarkitektúr, arkitektúr, verkfræði, byggingartæknifræði eða skyldum greinum
• Umsækjandi hafi tilskilin réttindi eða sé tilbúinn að afla þeirra innan umsamins tíma
• Umsækjandi hafi þekkingu á skipulagslöggjöf og/eða mannvirkjalöggjöf er kostur, sem og reynsla af sambærilegum störfum
• Umsækjendur sem eru að hefja feril á þessu sviði og hafa hug á að þróast í starfinu eru hvattir til að sækja um
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góða samskiptahæfni og þjónustulund
• Fjölbreytt starf með tækifæri til að móta og þróa starfshlutverk þitt
• Þátttöku í spennandi uppbyggingarverkefnum í Grundarfirði
• Faglegar áskoranir í lifandi og þróandi starfsumhverfi
• Góða starfsaðstöðu og hlýtt vinnuumhverfi
Grundarfjörður er þéttbýlisstaður á Snæfellsnesi, þar sem náttúrufegurð í heimsklassa er hluti af daglegu lífi. Kirkjufell, sem er þekktasta kennileyti bæjarins og telst til frægustu fjalla landsins, gnæfir yfir bænum. Í nágrenni bæjarins eru fjölbreyttar gönguleiðir og náttúruperlur fyrir þau sem vilja upplifa íslenska náttúru.
Sveitarfélagið er á spennandi uppbyggingarskeiði með fjölda verkefna framundan – bæði í innviðauppbyggingu og samfélagslegri þróun – og leitar að fagfólki sem vill vera þátttakandi í þessari framtíðarsýn.
Í bænum er leikskóli – þar sem tekið er við börnum frá 12 mánaða aldri – grunnskóli og framhaldsskóli, sem gerir Grundarfjörð að kjörnum stað fyrir fjölskyldur á öllum stigum. Þar er hlýtt og lifandi samfélag þar sem íbúar þekkjast og líður vel saman.
Í Grundarfirði er öflugt íþróttastarf þar sem UMFG býður upp á möguleikann á því að stunda allt að átta mismunandi íþróttir. Hér er golfvöllur, skíðasvæði, skotsvæði og aðstaða til hestaiðkunar.
Birkir Jón Jónsson, bæjarstjóri – sími 430 8500 – [email protected]
Örvar Þór Örlygsson, verkefnisstjóri tæknimála – [email protected]
Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála – [email protected]
Íslenska





