

Sviðsstjóri flota og viðhalds
Við leitum að öflugum og árangursdrifnum stjórnanda til að leiða nýtt svið hjá Steypustöðinni. Um er að ræða umfangsmikið stjórnunarstarf þar sem ábyrgð nær yfir daglega flotastýringu, viðhald, eignastýringu og áframhaldandi þróun á vörubílaflota fyrirtækisins.
Flotinn er einn af burðarásum starfseminnar og þjónar fjölbreyttum rekstrareiningum, þar á meðal steypuframleiðslu, einingaframleiðslu, námuvinnslu, efnisflutningum og útflutningi. Á sviðinu starfa um 70 manns og flotinn samanstendur af steypubílum, steypudælum, flotbílum, dráttarbílum og öðrum sérhæfðum ökutækjum. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í að hámarka nýtingu, tryggja rekstraröryggi og leiða fram umbætur í gegnum markvissa breytingastjórnun, stafræna þróun og gagnadrifna ákvarðanatöku.
Þetta er einstakt tækifæri til að móta og þróa nýtt lykilsvið innan fyrirtækis sem gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum innviðum. Réttur aðili fær víðtækt svigrúm til að hafa áhrif, byggja upp sterkt teymi og skapa raunverulegan árangur í rekstri.
- Stýring á daglegri flotanýtingu með það að markmiði að tryggja hámarksafköst, lágmarks niðritíma og skilvirka þjónustu.
- Ábyrgð á fyrirbyggjandi viðhaldsstefnu, verkstæðisrekstri og langtíma viðhaldsáætlun flotans
- Eignastýring flotans, þar með talið fjárfestingaáætlanir, endurnýjun búnaðar og líftímastýring eigna
- Innleiðing og eftirfylgni með öryggis- og gæðastöðlum, auk þess að tryggja fulla regluvörslu gagnvart lögum og reglugerðum
- Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri sviðsins, þar með talið gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana, kostnaðargreining og stýring lykiltalna (KPI)
- Leiðtogahlutverk í uppbyggingu teymis, þar á meðal ráðningar, fræðsla, þjálfun og frammistöðustjórnun starfsmanna
- Samskipti og samningar við verkstæði, birgja og þjónustuaðila
- Drifkraftur í stöðugum umbótum, stafrænum lausnum og nýtingu gagna til að bæta rekstur og ákvarðanatöku
- Háskólamenntun á sviði verkfræði, rekstrarfræði eða sambærilegu sviði sem nýtist í starfi
- Umfangsmikil reynsla af stjórnun í rekstrarumhverfi, helst tengdu flutningum, byggingariðnaði eða þungaiðnaði
- Reynsla af breytingastjórnun og innleiðingu umbótaverkefna er skilyrði
- Góð tækniþekking á vörubílum og sérhæfðum vinnuvélum er mikill kostur
- Reynsla af flotastýringarkerfum, gagnagreiningu og KPI-stýringu
- Framúrskarandi leiðtogahæfni, skipulag og samskiptafærni
- Hæfni til að vinna markvisst með árangursmælingar og ná fram mælanlegum umbótum í rekstri
Íslenska
Enska










