

Svæðisstjóri
Bakkinn Vöruhótel leitar að drífandi og ábyrgum einstaklingi í starf svæðisstjóra.
Starfið felur í sér að fara með daglega verkstjórn, framfylgja þjónustustöðlum og verkferlum, veita hópstjórum og starfsfólki stuðning og þjálfun, ásamt því að tryggja að öll verkefni séu unnin á öruggan og skilvirkan hátt.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fara með daglega verkstjórn.
- Framfylgja þjónustustöðlum og verkferlum.
- Skipulag vakta og starfsmannamál í samráði við viðskiptastjóra.
- Tryggja að öryggismál séu í samræmi við stefnu fyrirtækisins.
- Stuðla að jákvæðu og uppbyggilegu vinnuumhverfi.
- Annast samskipti og upplýsingagjöf til stjórnenda og starfsfólks.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfni.
- Framúrskarandi samskiptahæfni.
- Góður skilningur á íslensku eða ensku sem tryggir skilvirk samskipti.
- Skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi.
- Reynsla sem nýtist í starfi.
Fríðindi í starfi:
- Aðgangur að velferðarþjónustu Bakkans.
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, Elko og Lyfju.
- Styrkur til heilsueflingar.
- Niðurgreiddur hádegismatur.
Næsti yfirmaður svæðisstjóra er viðskiptastjóri.
Um Bakkann Vöruhótel:
Bakkinn er stoðfélag innan Festi samstæðunar og veitir rekstrarfélögum Festi þjónustu með vöruhýsingu og dreifingu. Bakkinn rekur tvö vel útbúin vöruhús í Klettagörðum 13 og Skarfagörðum 2 og leggur áherslu á að skapa öruggt og hvetjandi vinnuumhverfi fyrir alla starfsmenn.
Umsóknarfrestur:
Umsóknafrestur er til og með 6.júli 2025.
Hvetjum alla áhugasama sem uppfylla ofangreindar kröfur til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Anderson, Viðskiptastjóri, [email protected]
Bakkinn Vöruhótel starfrækir vottað jafnlaunakerfi og skuldbindur sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.











