ÍSÍ & UMFÍ
ÍSÍ & UMFÍ
ÍSÍ & UMFÍ

Svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Vestfjörðum

Vilt þú vinna að eflingu íþróttastarfs á Vestfjörðum?

ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi í starf svæðisfulltrúa á Vestfjörðum. Svæðisstöðvar íþróttahéraða hófu starfsemi í ágúst 2024 og skiptast í átta svæði um allt land.

Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á hverju svæði ásamt því að vinna að sameiginlegum verkefnum í öflugu teymi 16 svæðisfulltrúa. Starfsemi svæðisstöðva byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum og drifkrafti þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.

Staðsetning starfsins er á sambandssvæði eftirfarandi íþróttahéraða: Héraðssambandi Bolungarvíkur (HSB), Héraðssambandinu Hrafna-Flóka (HHF), Héraðssambandi Strandamanna (HSS) og Héraðssambandi Vestfirðinga (HSV).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar og stjórnvalda í íþróttamálum.
  • Efling íþróttastarfs á svæðinu með áherslu á þátttöku barna og ungmenna.
  • Auka tækifæri og þátttöku barna og ungmenna með stuðningsþarfir, af efnaminni heimilum og af erlendum tungumála- og menningarbakgrunn í íþróttastarfi. 
  • Skipulagning og stýring verkefna.
  • Þróun og hugmyndavinna.
  • Samvinna með íþróttahéruðunum á Vestfjörðum, aðildarfélögum og öðrum hagaðilum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Auglýsing birt20. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar