Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Sumarstörf við sundlaugar Borgarbyggðar

Íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar auglýsa eftir kvenkyns starfsmanni í sumarafleysingar.

  • Starfsmaður óskast við sundlaugina í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst 2023. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu og unnið þriðja hver helgi.

  • Starfsmaður óskast við sundlaugina á Kleppjárnsreykjum frá 3. júní til 13. ágúst 2023. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.

  • Starfsmaður óskast við sundlaugina á Varmalandi frá 3. júní til 13. ágúst 2023. Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er í vaktavinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
Hreint sakavottorð.
Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Öryggisgæsla og eftirlit.
Afgreiðsla og aðstoð við viðskiptavini.
Þrif.
Auglýsing birt21. mars 2023
Umsóknarfrestur4. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þorsteinsgata 1-3 1R, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar