
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar
Varmárlaug býður upp á sundlaug, barnalaug, sauna, vatnsgufu, infrarauðan klefa, tvo heita potta, þar af annar með nuddi, og leiktæki fyrir börnin. Líkamsræktarstöðin Elding er með líkamsræktarstöð í húsinu, og býr yfir fullbúnum tækjasal, leikfimisal o.fl.
Íþróttamiðstöðin Lágafell er með góða aðstöðu fyrir íþróttir og leiki. Þar er íþróttasalur með löglegum körfuboltavelli, hvíldarherbergi, nuddherbergi, eimbað og saunaklefi ásamt tilheyrandi búnings- og hreinlætisaðstöðu. Lágafellslaug býður upp á 25m keppnislaug, innisundlaug, barnalaug og vaðlaug auk þriggja vatnsrennibrauta. Þar eru einning tveir heitir pottar, nuddpottur og kaldur pottur. World Class er með líkamsræktarstöð í húsinu.
Sumarstörf í íþróttamiðstöðvum
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM SUNDLAUGARVÖRÐUM TIL STARFA Í ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐVUM Í MOSFELLSBÆ
Dagleg verkefni lúta meðal annars að afgreiðslu, þjónustu við þjónustuþega, samskipti við gesti/starfsmenn/aðra, símsvörun og upplýsingarmiðlun, almenn þrif og mælingar ásamt sundlaugargæslu, öryggisgæslu, klefavörslu, baðvörslu, gangavörslu sem og önnur verkefni sem snúa að uppgjöri og tækjakostum íþróttamiðstöðvarinnar.
Ábyrgðarsvið starfsmanns er að hafa jákvæð áhrif á vellíðan og virkni í samskiptum við aðra. Snyrtimennska, stundvísi og hreinlæti eru nauðsynleg.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Laugarvarsla
- Baðvarsla
- Afgreiðsla
- Þrif
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi mun sækja námskeið í skyndihjálp og þarf að standast hæfnispróf sundstaða.
- Lágmarksaldur 18 ár.
- Mjög góð þjónustulund.
- Dugnaður, stundvísi og samviskusemi.
Auglýsing birt12. febrúar 2024
Umsóknarfrestur13. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lækjarhlíð 1, 270 Mosfellsbær
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaJákvæðniSamviskusemiStundvísiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Öryggisvörður í farandgæslu
Securitas

Sölufulltrúi
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Dishwashing / Buzz
American Bar

Afgreiðslustjóri óskast í Hönnunarsafni Íslands
Garðabær

Grillari og afgreiðsla á þjónustustöð Olís Hellu
Olís ehf.

Hluta- og fullt starf í barnavöruverslun
Nine Kids

Aukafólk - Olís Neskaupstað góðar vaktir með skóla
Olís ehf.

Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Nettó Hrísalundi - umsjón
Nettó

Kjörbúðin Akureyri - hlutastarf
Kjörbúðin

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust