Festi
Festi
Festi

Sumarstörf í bókhaldi og innheimtu hjá Festi hf.

Festi leitar að talnaglöggum og metnaðarfullum háskólanemum í sumarstörf á fjármálasviði félagsins. Um er að ræða fullt starf yfir sumarið, með möguleika á hlutastarfi samhliða námi í framhaldinu.

Helstu verkefni:

  • Skráning og afstemmingu fjárhagsupplýsinga

  • Móttaka og skráning reikninga

  • Dagleg innheimtustörf

  • Samskipti við viðskiptamenn og þjónustuaðila

  • Almenn aðstoð við bókhald og skjalaumsýslu

  • Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði

Hæfniskröfur:

  • Háskólanemi í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist í starfi

  • Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta.

  • Vilji til að læra og áhugi á fjármálum

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Reynsla af bókhaldi eða bókhaldskerfum er kostur

Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Nánari upplýsingar veitir Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]. 

Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar