

Sumarstörf á Keflavíkurflugvelli
Airport Associates flugafgreiðslu fyrirtæki við Keflavíkurflugvöll leitar að starfsfólki í sumarstörf með möguleika á áframhaldandi starfi næsta haust. Um er að ræða hluta–sem og heilsdagsstörf í vaktavinnu.
Umsækjendur þurfa að sækja undirbúningsnámskeið áður en til starfa kemur og þurfa að geta hafið störf í apríl / maí og unnið út september/október 2022.
Mikilvægt er að allir umsækjendur búi yfir færni í mannlegum samskiptum, hafi ríka þjónustulund, séu stundvísir og agaðir í starfi en jafnframt sveigjanlegir. Góð enskukunátta er skilyrði í allar stöður. Reynsla á sviði flugafgreiðslu er kostur.
Allir umsækjendur þurfa að vera með hreint sakavottorð.
Farþega – og farangursþjónusta
Almenn farþegaafgreiðsla eins og innritun, þjónustuborð og önnur þjónusta við farþega. Stúdentspróf eða sambærileg menntun sem og ökuréttindi æskileg, tölvukunnátta og góð enskukunnátta mikilvæg. Lágmarksaldur 20 ár.
Hlaðdeild
Hleðsla og afhleðsla flugvéla á farangri og frakt. Akstur og notkunn vinnuvéla á flughlaði. Ökuréttindi skilyrði og vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 20 ár.
Ræsting og öryggisleit flugvéla
Starfið felst í ræstingu og öryggisleit í flugvélum. Ökuréttindi skilyrði. Lágmarksaldur er 20 ár.
Frakt
Skimun, móttaka og afhending á inn -og útfluttningi flugfraktar. Ökuréttindi skilyrði og tölvukunnátta mikilvæg. Vinnuvélaréttindi æskileg. Lágmarksaldur 20 ár.
Mötuneyti
Almenn eldhússtörf, undirbúningur ásalatbar, aðstoð viðmatseld, uppvask ofl. Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
Verkstæði
Almennt viðhald og viðgerðir á flugafgreiðslu tækjum sem og bílaviðgerðir. Bílpróf skilyrði og vinnuvélaréttindi kostur. Reynsla að sambærilegum störfum kostur. Lágmarksaldur 20 ár.
Enska










