
Slippfélagið ehf
Slippfélagið var stofnað í marsmánuði 1902 og er næst elsta starfandi hlutafélag landsins. Í upphafi einskorðaðist starfsemin við skipaviðgerðir og tengd verkefni en árið 1951 hóf félagið framleiðslu á málningu. Félagið selur flestar gerðir málningar s.s. húsamálningu og viðarvörn. Í umhverfismálum er stefna félagsins að sem flestar vörur þess séu umhverfisvænar og því eykst sífellt framboð þess á slíkum vörum. Vörur félagsins eru seldar hjá samstarfsaðilum þess allt í kringum landið.
Fyrirtækið var eitt fyrst íslenskra fyrirtækja til að setja sér sérstaka stefnu í umhverfismálum. Í daglegum rekstri er reynt eftir fremsta megni að uppfylla stefnu félagsins í umhverfismálum. Það er meðal annars gert með að skipta út hættulegum efnasamböndum og síðast en ekki síst með ráðgjöf til viðskiptavinar. Dæmi um það sem hefur áunnist á undanförnum árum er stóraukin notkun umhverfisvænna vatnsþynnanlegra málningarefna. Grænt bókhald er síðan notað sérstaklega til að meta hvernig til tekst hverju sinni.
Sumarstarfsmaður
Slippfélagið leitar að metnaðarfullum sölufulltrúa í sumarstarf í verslun okkar í Fellsmúla. Vinnutími er 10-18 alla virka daga og 10-14 aðra hvora helgi. Viðkomandi þarf að vera 18 ára eða eldri og geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri Slippfélagsins í Fellsmúla, Sigurbjörg Stefánsdóttir ([email protected]).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðsla og ráðgjöf
- Vöruframsetning og áfylling
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Rík þjónustulund
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Frumkvæði
- Tölvukunnátta
- Reynsla af afgreiðslustörfum og/eða málningarvörum kostur
- Góð íslensku-, ensku- og/eða pólskukunnátta.
Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur22. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
PólskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi helgarstarf - sumarafleysing
Húsgagnahöllin

Söluráðgjafi í heimilistækjadeild / hlutastarf
Rafha - Kvik

Úthringistarf hjá Tryggingamiðlun Ísland
Tryggingamiðlun Íslands

Söluráðgjafi með keppnisskap óskast.
Porsche á Íslandi

Afgreiðsla í verslun - Hlutastarf
Vistvera

Sölufulltrúi óskast
Vélar og verkfæri ehf.

Sölustarf í persónu (Face to face) - Sumarstarf - Akureyri
Takk ehf

Sölufulltrúi - Fullt starf
Byggt og búið

Söluráðgjafi í fasteignaþjónustu og viðhaldsverkefnum
Dagar hf.

Söluráðgjafi í söludeild
Arion banki

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Afgreiðsla í verslun / Viðgerðarmaður / Bike Mechanics
Markið