
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Sumarstarfsfólk í garðyrkjudeild
Um er að ræða sumarstörf í grænan flokk garðyrkjudeildar Akraneskaupstaðar, sem garðyrkjustjóri leiðir.
Menntunar- og hæfniskröfur
Áhugi á garðyrkju og umhverfismálum.
Góð samskiptahæfni og skipulagsfærni.
Starfið miðast við 18 - 20 ára +.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við ýmis garðyrkjustörf, almenna umhirðu og framkvæmdir á opnum svæðum í bæjarlandinu.
Auglýsing birt18. febrúar 2023
Umsóknarfrestur17. mars 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laugarbraut 6, 300 Akranes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)


