Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarf - Salalaug - Fullt starf

Í Sundlauginni Versölum vinna 23 einstaklingar, 6 til 7 starfsmenn á hverri vakt. Laugin er opin virka daga frá kl. 06:30 til 22:00 og um helgar frá 08.00 til 20.00. Vinnan hefst 15 mín. fyrir opnun og lýkur 30 mín. eftir lokun. Unnið er á tveimur vöktum virka daga en einni vakt um helgar.


Helstu verkefni og ábyrgð
Skipta má störfum starfsmanna sundlaugar í þrjú svið, ÖRYGGI, ÞRIF og ÞJÓNUSTU.
Á vinnustaðnum eru þrjú megin störf sem starfsfólk þarf að leysa af hendi.
Laugarvörður sem hefur útisvæði og innlaugar sem öryggis- og þrifasvæði.
Baðvörður sem gætir öryggis og þrifa í bað- og búningsklefum.
Afgreiðsla þar sem sala í laug og á ýmsum vörum fer fram, símsvörun, upplýsingagjöf, þrif og öryggiseftirlit.
Starfsmenn fá námskeið í fyrstu hjálp, björgun og fleiru.


Hæfniskröfur
Starfsfólk sundlauga verður að vera orðið 20 ára. Góð sundkunnátta er áskilin, því laugarverðir verða að standast sundpróf, sem er svipað og 10. sundstig grunnskóla. Stundvísi, samstarfseiginleikar, reglusemi, vinnusemi, samviskusemi og þjónustulund eru eiginleikar sem við metum mikils. Sundlaugin Versölum er reyklaus vinnustaður.


Frekari upplýsingar um starfið
Launakjör samkvæmt kjarasamningi Kópavogsbæjar og Starfsmannafélags Kópavogs.
Starfshlutfall 100%
Starfstímabil frá síðari hluta maí til síðari hluta ágúst


Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Halldórsson forstöðumaður í síma 441-8605

Auglýsing birt8. febrúar 2021
Umsóknarfrestur28. febrúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SundPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar