Leikskólinn Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sumarstarf í leikskólanum Maríuborg

Leikskólinn er staðsettur í Maríubaug 3 í Grafarholti. Náttúrufegurðin umkringir leikskólann og skapar einstakt tækifæri fyrir börnin til náms. Útisvæðið okkar er því fullt af töfrum sem gaman er að upplifa. Skólinn er bjartur og fallegur og skiptist í fjórar deildir, þar af íþróttasal, tvær kubbastofur og listasmiðju, auk starfsmannarýmis og eldhúss.

Einkunnarorð okkar og megingildi eru LEIKUR-SAMSKIPTI-NÁMSGLEÐI og er það grunnurinn að öllu okkar starfi. Við leggjum áherslu á læsi, frjálsan leik og félagsfærni. Lubbi finnur málbein og Vináttuverkefni Barnaheilla eru einnig ómissandi þáttur í lífi og námi barnanna í Maríuborg en söngur og tónlist skipar einnig stóran sess í starfi okkar. Þá er einnig starfrækt læsisteymi við leikskólann sem heldur utan um gerð læsis- og málstefnu Maríuborgar, sem verið er að vinna að. Að okkar mati er mikilvægt að leikur barna og skapandi starf fái rými og að börn nái að blómstra út frá sínum styrkleikum í ró og næði. Í Maríuborg er því lögð áhersla á faglegt starf sem þróast í takt við nýjustu rannsóknir og reynslu í menntunarfræði ungra barna. Þá er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Draumar geta ræst, sem og Aðalnámskrá leikskóla.

Leikskólinn lokar 13.júlí til 10.ágúst, í 20 virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
  • Leika með börnunum og taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
  • Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
  • Samskipti og samvinna við foreldra.
  • Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verður að hafa náð 18 ára aldri.
  • Jákvæðni og frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Framhaldsmenntun og/eða stúdentspróf æskilegt
  • Hæfni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Ábyrgð og áreiðanleiki.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum er skilyrði.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi

Fríðindi í starfi

  • 36-38 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
  • Samgöngusamningur
  • Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Maríubaugur 3, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar