
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Sumarstarf í íbúðakjarna í Þorláksgeisla
Austurmiðstöð auglýsir eftir áhugasömu sumarstarfsfólki til starfa í íbúðakjarna í Grafarholti. Til greina kemur bæði fullt starf og hlutastarf. Unnið er á blönduðum vöktum.
Starfið er bæði krefjandi og skemmtilegt og felst í aðstoð við ungt fólk með einhverfu. Í íbúðakjarnanum búa fimm einstaklingar á aldrinum 22-30 ára með einhverfu og skyldar raskanir.
Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Viðkomandi þarf að vera orðinn 21 árs, með bílpróf og hreint sakavottorð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Markmiðið er að tryggja lífsgæði íbúa og styðja þá til sjálfstæðis.
- Leitast er við að einstaklingsmiða þjónustuna og aðlaga hana að breytilegum þörfum íbúa á hverjum tíma.
- Í starfinu felst stuðningur við allar athafnir daglegs lífs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
- Íslenskukunnátta skilyrði.
- Framtakssemi, áreiðanaleiki, heiðarleiki og jákvæðni í starfi.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar.
- Ökuréttindi.
Auglýsing birt27. mars 2024
Umsóknarfrestur9. apríl 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þorláksgeisli 2-4 2R, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Stuðningsráðgjafi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (10)

Stuðningsráðgjafi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsfólk í búsetuþjónustu fyrir fólk með fötlun - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 30 Nóvember
NPA miðstöðin

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær