
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð veitir fjölbreytta þjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa.
Sveitarfélagið leggur áherslu á að eldra fólk geti búið sjálfstætt sem lengst. Eldra fólk er fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir. Í boði er félagsstarf og fjölbreyttur stuðningur í gegnum heimaþjónustu.

Sumarafleysing - Starfsmaður í heimaþjónustu
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til sumarstarfs í heimaþjónustu í Fjarðabyggð. Að öllu jafna er inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega, staðsetningin er því breytileg. Um er að ræða tímabundið 100% starfshlutfall.
Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Félagslegt innlit og stuðningur
- Aðstoð við heimilishald, svo sem daglegar athafnir, innkaup og fl.
- Veita persónulega aðstoð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
- Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
- Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Fjarðabyggð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

PA óskast í fullt starf/PA wanted for full-time position
Aðstoð óskast

NPA Aðstoðarkonur sem kunna að prjóna eða hekla óskast í hlutastarf
NPA miðstöðin

Sumarstarf í búsetuþjónustu og skammtímadvöl
Skáli búsetuþjónusta og skammtímadvöl

Starfsmaður í heimaþjónustu - Sumarstarf
Hafnarfjarðarbær

Félagsliði í heimaþjónustu - Sumarstarf
Hafnarfjarðarbær

Óska eftir NPA aðstoðarfólki
NPA miðstöðin

Sumarstörf með fötluðu fólki á Egilsstöðum
Fjölskyldusvið

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin