Fellaskóli
Fellaskóli
Fellaskóli

Stuðningsfulltrúi i

Í skemmtilegan og fjölbreyttan starfsmannahóp vantar okkur stuðningsfulltrúa.

Í Fellaskóla er fjölbreyttur og hæfileikaríkur nemendahópur. Flestir nemendanna tala fleiri en eitt tungumál og tengjast fjölmörgum löndum og menningarsvæðum. Með nemendum starfar öflugur hópur starfsfólks. Skólastarfið einkennist af jákvæðum skólabrag, samvinnu kennara sem miðar að því að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda, styrkja samskipti innan nemendahópsins og skapa metnaðarfullt námsumhverfi án aðgreiningar þar sem nemendur geta látið drauma sína rætast.

Stuðningsfulltrúi starfar náið með kennurum og öðrum stuðningsfulltrúum . Næsti yfirmenn er aðstoðarskólastjóri.

Fellaskóli er skóli án aðgreiningar og meginstefnan er að sérkennsla og ÍSAT kennsla fari fram í bekk. Mikil áhersla er á læsi í yngstu árgöngunum og við vinnum náið með leikskólum hverfisins til að efla málþroska nemenda. Í Fellaskóla starfar talmeinafræðingur.

Fellaskóli er símalaus skóli, sem þýðir að nemendur nota ekki síma á skólatíma.

Við bjóðum upp á skemmtilegt starfsumhverfi, flottan starfsmannahóp og rík tækifæri til að þróast í starfi. Við leitum bæði að áhugasömum kennurum og leiðbeinendum með fjölbreytta menntun og bakgrunn.

Um er að ræða hlutastarf og / eða fullt starf. Ef um fullt starf er að ræða er hluti af vinnuskyldu í frístundaheimilinu Vinafelli í Fellaskóla fyrir nemendur í 1. og 2. bekk.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að aðstoða nemanda / nemendur á yngra stigi við þátttöku í skóla og athafnir daglegs lífs í skóla.
  • Að aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámskrá/ einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara
  • Að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skóla.
  • Að fylgja nemendum í skóla, í frímínútum og í vettvangsferðum.
  • Samskipti og samstarf við börn, foreldra, forráðamenn og starfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta (B1)
  • Kunnátta í erlendu tungumáli er kostur
Auglýsing birt8. september 2025
Umsóknarfrestur15. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurfell 17-19 17R, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar