
Sólheimar ses.
Sólheimar hafa starfað að mannrækt, umhverfis- og menningarmálum í 95 ár. Í byggðarhverfinu Sólheimum búa og starfa um 100 manns. Rekin er fjölþætt atvinnustarfsemi, s.s. öflug félagsþjónusta, gróðrarstöð, skógrækt, verslun, kaffihúsi, kaffibrennsla, nytjamarkaður, vefverslun, jurtastofa og gistiheimili. Á staðnum eru fimm mismunandi vinnustofur; leirgerð, listasmiðja, kertagerð, vefstofa og smíðastofa. Menningarstarfsemi er fjölbreytt, en á Sólheimum er sögusafn, sýningarsalir, höggmyndagarður, trjásafn, kirkja, fræðasetrið Sesseljuhús og íþróttaleikhús og sundlaug. Gildi Sólheima eru; Kærleikur, virðing, sköpunargleði og fagmennska.

Stuðningsfulltrúar óskast í sumarafleysingar
Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í sumarafleysingar, til að aðstoða þjónustunotendur í sjálfstæðri búsetu sem og með búsetu í íbúðakjörnum.
Um er að ræða 100% störf í afleysingum. Unnið er í vaktalotum, langar vaktir í 6 daga og frí í 8 daga á milli.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af störfum með fötluðu fólki, sé jákvæður og hafi ríka þjónustulund. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Bárunnar stéttarfélags við Sólheima ses.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita íbúum aðstoð við athafnir daglegs lífs
- Dagleg umsjón með heimilishaldi, þrifum og öðrum tilfallandi verkefnum
- Hvetja íbúa til virkni, þjálfunar og þátttöku í félagslífi
- Samstarf við íbúa, aðstandendur og annað starfsfólk
- Tryggja að framkvæmd þjónustu sé í samræmi við lög og reglur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Reglusemi áskilin
- Starfsmaður skal hafa hreint sakavottorð
- Reynsla af umönnunarstörfum æskileg
- Bílpróf æskilegt
- Starfsmaður þarf að starfa í samræmi við gildi Sólheima
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að líkamsrækt og sundlaug.
Auglýsing birt15. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólheimar 168279, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í Hamrahlíð Vinna og Virkni
Hamrahlíð Vinna og Virkni

Starfsmaður í skammtímadvöl – Heiðarholt
Suðurnesjabær

Aðstoð vantar á tannlæknastofu.
Tannlæknastofan Lindarbros

Uppsetningar
Titus

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á föstudögum og afleysingar.
NPA miðstöðin

Icekorea leitar að sölumanneskju / söluráðgjafa
Icekorea

Aðstoð á iðjuþjálfunardeild
Reykjalundur

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 31 október
NPA miðstöðin