Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúar - nýr íbúðakjarni

Þjónustumiðstöð Breiðholts leitar að stuðningsfulltrúum í nýjan íbúðarkjarna Tindasel 1, til þess að þjónusta fimm íbúa á aldrinum 30 - 58 ára. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf. Um blandaðar vaktir eru að ræða. Starfshlutfall fer eftir samkomulagi.

Í Tindaseli er lögð áhersla á jákvæð og uppbyggileg samskipti. Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa og lifa sjálfstætt. Markmiðið er að aðstoða þau við að skapa og þróa ný tækifæri í lífi sínu. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun.
Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi.
Íslenskukunnátta B1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
Gerð er krafa um ökuréttindi B.
Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningur og aðstoð við íbúa við allar athafnir daglegs lífs.
Stuðningur og aðstoð sem gera einstaklingum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs
Hvetur og styður íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa:
Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
Markmiðið er að styðja einstaklinga við að búa á eigin heimili, stunda vinnutengda stoðþjónustu, auka samfélagsþátttöku, sækja þjónustu og njóta menningar og félagslífs.
Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins og laga þjónustuna að breytilegum þörfum og aðstæðum viðkomandi á hverjum tíma. Virða ber sjálfræði einstaklinga og hafa velferð þeirra að leiðarljósi.
Fríðindi í starfi
Menningarkort
Heilsustyrkur
Sundkort
Samgöngustyrkur
Auglýsing birt22. desember 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar