

Almenn umsókn
Ert þú hugbúnaðarsérfæðingur sem hefur þekkingu á app þróun eða ert snillingur í að gera góða "mobile" vefi?
Við erum alltaf áhugasöm um að bæta hæfileikaríkum aðilum í teymið okkar sem geta búið til notendavæn öpp, bakenda sem svínvirka eða magnaða vefi, sem skalast að sjálfsögðu fyrir öll tæki.
Við trúum því að það eigi að vera gaman í vinnunni og verkefnin þurfa að vera bæði skemmtileg og ögrandi. Starfsmenn eiga að hafa tækifæri til að læra nýja hluti og taka fullan þátt í þróunarferlinu og ákvörðunum.
Ef þú er einstaklega skemmtilegur og hæfileikaríkur einstaklingur með brennandi ást á mobile lausnum, þá hefur Stokkur Software það sem þú ert að leita að. Hjá okkur finnur þú skemmtilegt og lifandi umhverfi, ásamt krefjandi verkefnum sem einungis snillingar geta leyst.
Stokkur notar Agile aðferðafræði við þróun allra lausna og leggur áherslu á teymisvinnu, bæði milli starfsmanna og með viðskiptavinum sínum. Frumkvæði, fagmennska og færni í mannlegum samskiptum eru nauðsynlegir eiginleikar hjá starfsmönnum Stokks.
ÁBYRGÐARSVIÐ:
- Hugbúnaðargerð
- Rekstur á öppum, vefum, bakendum og öðrum lausnum.
- Hugmyndavinna
- Samskipti við viðskiptavini
VIÐ BJÓÐUM UPP Á:
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með hæfileikaríku fólki
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Mjög góða vinnuaðstöðu í hjarta Reykjavíkur
