
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Störf í fóðurverksmiðju Líflands (dagvinna og vaktavinna)
Starf í fóðurverksmiðju Líflands
Lífland leitar að öflugum og handlögnum starfsmönnum til að sinna ýmsum verkefnum í fóðurverksmiðju Líflands á Grundartanga.
Um er að ræða tvö störf:
Vaktavinna, ein vika kl. 8-17 (mán-fim og 16 á föst) og ein vika 17-02 (mán-fim)
Dagvinna 8-17 (mán- fim og til 16 á föst) og tilfallandi afleysingar á vöktum.
Lífland sér um ferðir frá höfuðborgarsvæðinu að Grundartanga.
Íslenskukunnátta skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Framleiðsla á fóðri
- Umsjón með hráefnalager
- Sekkjun í smásekki og stórsekki
- Þrif á verksmiðju
- Löndun á hráefnum
- Ýmis tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af viðhaldi á vélum og búnaði
- Bílpróf æskilegt
- Vinnuvélaréttindi æskileg
- Tölvukunnátta æskileg
- Íslenskukunnátta æskileg
Auglýsing birt12. desember 2025
Umsóknarfrestur4. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Klafastaðavegur 1, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
ÖkuréttindiVinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (6)

Sumarstörf hjá Elkem Ísland 2026
Elkem Ísland ehf

Spennandi sumarstörf 2026 / Exciting Summer Jobs 2026
Alcoa Fjarðaál

Jólavinna í Fotomax - Starfsmaður í verslun eða framleiðslu
Fotomax

Almennur starfsmaður í framleiðslu
Ali

Kjötskurðarmaður/Meatcutter
Ali

Aðstoðarmaður í skiltagerð
Xprent- hönnun og merkingar ehf