
Reglun ehf.
Reglun er verkfræðistofa, sérhæfð í stýringum og iðnaði. Við þjónustum viðskiptavini í iðnaði varðandi hönnun, viðhald og rekstur á rafbúnaði, stýringum og skjákerfum.

Stjórnkerfahönnun í iðnaði
Reglun verkfræðistofa auglýsir eftir verk- eða tæknifræðingi í teymi stjórnkerfahönnuða Reglunar.
Hér er á ferðinni frábært tækifæri fyrir framsækinn einstakling til að byggja upp víðtæka færni og þekkingu á sviði stýritækni í iðnaði, frá frumhönnun til reksturs og viðhalds, undir handleiðslu sérfræðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Rafhönnun og viðhald á rafmagnsteikningum í AutoCAD og EPLAN
- Forritun stýrivéla (PLC), viðmóta (HMI) og skjákerfa (SCADA) í iðnaðarumhverfi
- Uppsetning og viðhald á iðnstýrikerfum.
- Samvinna með hönnuðum og verkefnastjórum, bæði innan og utan fyrirtækisins.
- Greiningar- og uppsetningarvinna á verkstaði í iðnaðarumhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Hæfniskröfur
- Háskólapróf (BSc.) í rafmagnsverkfræði, rafmagnstæknifræði eða sambærilegu (eða á lokaári)
- Reynsla af AutoCAD og/eða EPLAN og rafhönnun almennt er kostur.
- Þekking á og/eða áhugi á stýritækni í iðnaði er kostur.
- Öguð og vönduð vinnubrögð, bæði sjálfstætt og í teymi.
- Jákvætt yfirbragð og færni í faglegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
Víð bjóðum
- Tækifæri til að byggja upp víðtæka þekkingu á sviði rafhönnunar og stýritækni í iðnaði undir handleiðslu teymis sérfræðinga.
- Heilnæmt vinnuumhverfi þar sem gæði, nákvæmni og fagmennska skipta máli
- Samkeppnishæf kjör og góðan starfsanda.
- Tækifæri til starfsþróunar
- Mötuneyti
Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skeifan 19, 108 Reykjavík
Straumsvík, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
AutoCADFagmennskaFljót/ur að læraJákvæðniNákvæmniPLC forritunSamviskusemiÞjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Verkefnastjóri gervigreindarmála (AI Coordinator)
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í stýri- og sjálfvirknikerfum (SCADA) – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Söluráðgjafi glugga- og sérlausna
Húsasmiðjan

Sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar
Akureyrarbær

Háskólakennari í byggingafræði
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins