
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Starfsmenn í stuðningsþjónustu/liðveisla
Starfsfólk óskast í stuðningsþjónustu (liðveislu) við fötluð börn. Um er að ræða störf í tímavinnu. Helstu markmið stuðningsþjónustu er að rjúfa félagslega einangrun, stuðla að aukinni félagslegri virkni eða aðstoða við almenna tómstundaiðkun.
Viðkomandi þarf að vera 18 ára eða eldri. Reynsla sem gæti nýst í starfi æskileg. Starfsfólk í stuðningsþjónustu vinnur gjarnan sjálfstætt en hefur stuðning ráðgjafaþroskaþjálfa eða ráðgjafa í málefnum fatlaðra eftir þörfum. Bílpróf ekki nauðsynlegt.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og leikni við að bregðast við óvæntum aðstæðum.
Frumkvæði og sveigjanleiki.
Jákvæðni í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt15. nóvember 2021
Umsóknarfrestur30. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Stillholt 16-18 16R, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Frístundaráðgjafar/leiðbeinendur í frístundaheimilinum Vogasel og Álftabæ
Kringlumýri frístundamiðstöð

Urriðaholtsskóli - Frístundaleiðbeinandi í Urriðakot
Garðabær

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskólanum Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Þroskaþjálfi - iðjuþjálfi
Specialisterne

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Kór

Viltu vera með?
LFA ehf.

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli
Dalskóli

Starfsfólk óskast á íbúðarkjarna
Kópavogsbær

Leikskólakennari óskast í Efstahjalla
Efstihjalli

Kennari í Andabæ
Borgarbyggð

Staða kennara/leiðbeinanda við Reykhólaskóla lausa til umsóknar.
Reykhólahreppur