
SINDRI
Sindri flytur inn og selur verkfæri, vinnuföt , loftpressur, og festingavörur frá þekktum framleiðendum s.s. Atlas Copco, DeWalt, Blaklader, Contracor, Toptul, Fabory og Ridgid.
Í dag bíður Sindri uppá allt sitt vöruúrval á einum stað að Smiðjuvegi 11 undir merkjum Sindra en vörur frá Sindra eru einnig fáanlegar í verslunum Johan Rönning á Akureyri, Reyðarfirði, Selfossi og í Reykjanesbæ.
Fyrirtækið var stofnað 1949 af Einari Ásmundssyni og fjölskyldu hans með það markmið að flytja inn stál, byggingavörur og verkfæri fyrir ört vaxandi byggingarmarkað á Íslandi. Á þessum tíma hefur fyrirtækið á eignast stóran hóp traustra viðskiptavina en helstu viðskiptavinir Sindra eru iðnfyrirtæki, verkstæði og einstaklingar.
Sindri er verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði byggingalausna, festinga, véla, verkfæra og vinnufatnaðar. Fyrirtækið var stofnað árið 1949 og er í dag hluti af Fagkaupum ehf.
Fagkaup rekur ásamt Sindra verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Vatn & veitur, S. Guðjónsson, Áltak, K.H.Vinnuföt, Varma og Vélaverk, Ísleif, Hagblikk, DS lausnir, K.Þorsteinsson og co og Fossberg
Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 starfsmenn í Reykjavík, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og á Akureyri.
Höfuðstöðvar félagsins eru að Klettagörðum 25 í Reykjavík.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Unnið er að jákvæðu, hvetjandi og öruggu starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er höfð að leiðarsljósi.

Viltu vinna í góðum hóp
Sindri óskar eftir að ráða starfskrafta á þjónustuverkstæði sitt að Smiðjuvegi 11 í Kópavogi.
Hjá Sindra leggjum við áherslu á jákvætt umhverfi þar sem upplifun viðskiptavinarins er í fyrirúmi og starfsfólk leggst á eitt við að veita bestu mögulegu þjónustu.
Í boði er fjölbreytt og lifandi starf sem krefst góðra samskiptahæfileika og jákvæðs viðmóts.
Öðru starfinu fylgja þjónustuferðir innanbæjar og utan og því ákaflega mikilvægt að sá sem ráðinn er til starfsins sé verðugur fulltrúi Sindra á vettvangi og sýni fagmannlega framkomu og framúrskarandi þjónustulund.
Í boði eru 2 störf, starf við þjónustu á rafmagnsverkfærum annars vegar og svo þjónusta á loftpressum hins vegar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðgerðir og þjónusta á rafmagnsverkfærum
- Viðgerðir og þjónusta á loftpressum
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf t.d í rafvirkjun, vélvirkjun eða reynsla úr sambærilegu starfi er kostur
- Rík þjónustulund
- Stundvísi og góð framkoma
- Geta sýnt frumkvæði og unnið sjálfstætt
- Góð tölvukunnátta
- Snyrtimennska
- ökuréttindi skilyrði
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Stytting vinnuviku
- Jafnlaunavottun
- Niðurgreiddur hádegismatur
Auglýsing birt6. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Smiðjuvegur 11, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiBílvélaviðgerðirFrumkvæðiJákvæðniRafvirkjunStundvísiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Stöðvarstjóri á Selfossi
Frumherji hf

Vélstjóri/ Vélfræðingur óskast í VARMA OG VÉLAVERK
Varma og Vélaverk

Starfsmaður í steypuþjónustu
Jarðboranir

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna
Rio Tinto á Íslandi

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Tæknimaður óskast
Lyftulausnir ehf.

Bílrúðuísetningar
Bílrúðan ehf

Bifvélavirki / handlaginn einstaklingur
Katlatrack ehf