
Íþróttahús Kópavogsbæjar
Kópavogsbær rekur sex íþróttahús sem notuð eru bæði fyrir skólaíþróttir og íþróttastarf. Þau eru staðsett í Digranesi, Fagralundi, Kársnesskóla, Kópavogsskóla, Lindaskóla og Vatnsendaskóla. Ásamt íþróttahúsunum rekur Kópavogsbær einnig skíðamiðstöð Kópavogs í Bláfjöllum sem og Kópavogsvöll sem er notaður bæði af íþróttafélögunum og er opin almenningi.

Starfsmaður óskast í íþróttahús Lindaskóla
Starfsmaður óskast í íþróttahús Lindaskóla. Í starfinu felst m.a. þjónusta og samskipti við iðkendur og notendur ásamt þrifum, öryggisgæslu og klefavörslu í karlaklefa íþróttahússins. Þar af leiðandi koma eingöngu karlar til greina í starfið.
Starfsmaður íþróttahúss hefur eftirlit með því að umgengnisreglur séu virtar og hefur hlutverki að gegna í því að leiðbeina börnum og öðrum gestum sem þangað koma.
Um er að ræða 100% starf í dagvinnu. Íþróttahúsin eru reyklaus vinnustaður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka vel á móti gestum íþróttahússins, aðstoða þá og leiðbeina
- Afgreiðsla, símsvörun og upplýsingagjöf
- Klefavarsla í karlaklefa sem er fólgin í þrifum í bað- og búningsklefum auk öryggisgæslu á þeim stöðum
- Ræsting og þrif á öðrum rýmum íþróttahússins
- Eftirlit með tækjum, húsbúnaði o.fl. sem heyrir undir íþróttahúsið
- Sýna notendum íþróttahússins gott fordæmi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsfólk íþróttahúsa skal vera orðið 20 ára
- Þar sem um klefavörslu í karlaklefa er að ræða koma eingöngu karlar til greina í starfið
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og þolinmæði
- Góð samstarfshæfni og þjónustulund
- Stundvísi, vinnusemi og samviskusemi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Enskukunnátta æskileg
- Grunnmenntun í skyndihjálp æskileg
- Almenn tölvukunnátta æskileg
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur12. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Núpalind 7, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Housekeeping part time, 60-70% - SOUTH ICELAND
Panorama Glass Lodge

Newrest - Kvöld og næturþrif / Night Cleaning Operative
NEWREST ICELAND ehf.

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Íþróttamiðstöðin Varmá leitar að öflugu starfsfólki– dagvinna og hlutastörf
Íþróttamiðstöðvar Mosfellsbæjar

Starfsfólk í íþrótta- og samfélagsmiðstöðina Heiðarborg
Hvalfjarðarsveit

Starfsfólk óskast í herbergjaþrif
360 Hótel

We Are Hiring: Housekeeping Staff for Skáld Akureyri, Curio Collection by Hilton
Skáld Akureyri, Curio Collection by Hilton

Leitum að uppvaskara / looking for dishwasher
Apotek kitchen + bar

Þrif í Hvammsvík / Housekeeper in Hvammsvík - Full time
Hvammsvík Sjóböð ehf

Digranes- og Hjallakirkja óska eftir öflugum starfsmanni.
Digranes-og Hjallakirkja

Starfsfólk óskast við ræstingar á suðurlandi Hveragerði, Selfossi og Þorlákshöfn
Hreint ehf

Starfsfólk óskast til ræstinga
Hreint ehf