
Íþróttafélagið Þingeyingur
Íþróttafélagið Þingeyingur er staðsett í Öxarfirði stofnað 2021. Félagið er með samstarfssamning við Norðurþing og sinnir íþrótta- og félagsstarfi við Kelduhverfi, Öxarfjörð og Kópasker. Félagið er með hreyfiverkefni í samstarfi við Öxarfjarðarskóla um íþróttaæfingar 2 daga í viku á skólatíma fyrir 1-10 bekk.

Starfsmaður Íþróttafélagsins Þingeyings
Íþróttafélagið Þingeyingur leitar að skipulögðum og ábyrgum einstaklingi með góða samskiptahæfni til að sinna fjólbreyttu starfi innan félagsins. Starfsmaðurinn kemur að umsjón og framkvæmdum ýmissa verkefna er varða rekstur íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi, sem og umsjón, skipulagningu og þjálfun íþrótta- og æskulýðsstarfs á svæðinu.
Starfið getur verið ein staða í 100% starfshlutfalli eða fleiri stöður í minna starfshlutfalli hver.
Nýtt starf er um að ræða innan félagsins.
Launakjör fara eftir kjarasamningi Starfsgreina Sambandið og Sambandi íslenskra sveitarfélaga en önnur starfskjör fylgja samningi Landssambands Íslenzkra Verzlunarmanna og Samtaka Atvinnulífsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og framkvæmd verkefna er varða rekstur íþróttamannvirkja á Kópaskeri og í Lundi.
- Aðgangsstýring, ræsting og skipulag útleigu á mannvirkjum.
- Stuðningur við daglegan rekstur félagsins og aðstoð við stjórn Þingeyings, eftir því sem við á.
- Skipulag, umsjón og þjálfun á æfingum félagsins og hreyfiverkefni í samstarfi við Öxarfjarðarskóla.
- Virkja og auka æfingaframboð á Kópaskeri og í Lundi.
- Skipulagt íþróttastarf fyrir börn að jafnaði 1–2 sinnum í viku.
- Aðkoma að starfi eldri borgara á svæðinu í formi hreyfingar.
- Undirbúningur, dagleg þáttaka, skipulag og framkvæmd Sumarfrístundar í Öxarfirði, í samstarfi við Norðurþing.
- Þátttaka í daglegu starfi Sumarfrístundar á sumartímabili.
- Utanumhald og umsýsla með rafrænum kerfum félagsins, þar á meðal Abler.
- Innleiðing og uppfærsla á stefnum og viðbragðsáætlunum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Almenn tölvuþekking og færni.
- Reynsla af þjálfun eða kennslu í æskulýðstarfi eða sambærilegum störfum er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og kurteisi.
- Jákvæðni, starfsgleði, frumkvæði og sveigjanleiki.
- Samviskusemi, stundvísi og skipulagshæfni.
- Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.
- Hreint sakavottorð skv. æskulýðslögum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bakkagata 12, 670 Kópasker
Lundur 154187, 671 Kópasker
Starfstegund
Hæfni
ÁkveðniAlmenn tæknikunnáttaÁreiðanleikiDrifkrafturFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniKennslaLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiMetnaðurReyklausSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSkyndihjálpStundvísiTóbakslausUmsýsla gæðakerfaVeiplausÞjónustulundÞrif
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Helgarstörf við þrif í íbúðarhóteli og hosteli á Akureyri
Akureyri Hostel ehf

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar - Ræstitæknir
Reykjanesbær

Störf í ræstingum á Dalvík- Mism. starfshlutföll / Cleaning jobs in Dalvík - Full and part time
Dagar hf.

Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali

Manufacturing Cleaning Specialist
Alvotech hf

Umsjónarmaður húseigna og búnaðar
Háskólinn á Akureyri

Íshokkísamband Íslands leitar að starfsmanni í 40% tímabundið starf
Íshokkísamband Íslands

Starfsfólk óskast til ræstinga
Hreint ehf

Íþróttamiðstöðin á Blönduósi - sundlaugarvörður.
Húnabyggð

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Hlutastörf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur