BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954.
Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna.
Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR.
Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.
Starfsmaður í tjónaskoðun
Við leitum að faglærðum bifreiðasmið eða bílamálara í tjónaskoðun á Réttingar og málningarverkstæði BL á Viðarhöfða. Viðkomandi þarf að hafa góða tölvuþekkingu og vera góður í mannlegum samskiptum. Starfið fellst í tjónaskoðunum og kostnaðaráætlunum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fagnám sem tengist starfinu
- Starfsreynsla
- Tölvufærni
- Cabas þekking nauðsynleg
- Bílpróf
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð eru nauðsynleg
Fríðindi í starfi
- Afsláttarkjör af bílum, aukahlutum, varahlutum ofl.
- Mötuneyti með heitum mat
- Afsláttur á hleðslustöðvum Ísorku
- Afsláttur af leigu á bílum hjá FLEX
- Íþróttastyrkur
Frekari upplýsingar
Vinnutími mánudaga til fimmtudaga kl: 8-17, en til kl. 15:15 á föstudögum.
Nánari upplýsingar veitir Reynir Örn Harðarson, framkvæmdarstjóri réttingar og málningar, á netfanginu reynir@bl.is
Auglýsing birt9. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (9)
Bílamálari og Réttari - Vantar tvo snillinga í vinnu
Formverk ehf
Skoðunarmaður- Frumherji á Egilsstöðum
Frumherji hf
Bílamálari
Toyota
Bifreiðasmiður
Toyota
Tjónaskoðun
Toyota
Bílamálari/Réttingamaður- Car painter/
Sprautun.is
Bifvélavirki óskast / Auto mechanic wanted
ABC Bílaviðgerðir ehf.
Bílamálun og Réttingar
Bílamál ehf
Starfsmaður á réttingaverkstæði
Lotus Car Rental ehf.