Byko
Byko
Byko

Starfsmaður í timburafgreiðslu - BYKO Suðurnesjum

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi í timburafgreiðslu okkar á Suðurnesjum.

Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími: Alla virka daga frá kl. 08:00-16:00 og 10:00-18:00. Einnig þriðja hver helgi.

Við leitum að starfsmanni með:

  • Ríka þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Lyftarapróf, kostur
  • Áhuga á verslun og þjónustu
  • Bílpróf, skilyrði

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn afgreiðslu og lagerstörf
  • Móttaka og frágangur á vörum
  • Almenn þjónusta við viðskiptavini
  • Önnur tilfallandi verkefni

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Umsóknarfrestur er til og með 20.apríl en unnið er úr umsóknum jafnóðum.

Nánari upplýsingar veitir Þórður I. Þorbjörnsson, verslunarstjóri ([email protected]).

Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fitjabraut 5, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar