

Vaktstjóri í Fontana
Ert þú skipulagður, jákvæður og átt auðvelt með að vinna með fólki? Fontana er að opna böðin aftur eftir gagngera endnýjun og við erum að leita að vaktstjóra sem vill vera með frá byrjun.
Fontana er á Laugarvatni, um klukkustundar akstur frá Reykjavík, þar sem baðmenning á sér rætur allt aftur til kristnitöku Íslands. Fyrstu gufuböðin á svæðinu voru reist árið 1929, beint yfir kröftugum hver, og í dag notum við sama hverasvæði til að bjóða upp á náttúrulegar baðlón, gufu böð og rúgbrauðsferðir þar sem brauðið er bakað í hver á vatnsbakkanum.
Stórglæsileg ný böð og aðstaða opnar í júní. Starfsmannaaðstaðan er ný og okkur hlakkar til að taka á móti nýjum starfsmönnum með opnum örmum. Þetta er tækifæri til að vera með frá byrjun og móta menningu vinnustaðarins.
Vaktstjóri er lykilstarfsmaður í teyminu. Þú kemur fyrstur og tryggir að dagurinn byrji vel, sér til þess að framlínuteymið viti hvað sé framundan, að hóparnir fái faglega og hlýja móttökur og að allt sé í topp standi, hvort sem það séu böðin, klefarnir eða við afgreiðsluborðið. Þú leiðir teymið, leysir vandamal áður en gestirnir taka eftir þeim og heldur starfsfólkinu glöðu og jákvæðu þegar á reynir.
Við erum að leita að framtíðarstarfsmanni og með starfinu fylgir íbúð eða herbergi í göngufjarlægð frá Fontana. Frábær líkamsræktaraðstaða er á staðnum og náttúran ægifögur.
- Stjórnun framlínu á vakt.
- Undirbúningur dagsins og móttaka hópa.
- Umsjón með birgðum og pöntunum
- Gæði þjónustu, hreinlæti og öryggi.
- Þjálfun starfsmanna í samstarfi við rekstrarstjóra.
- Umsjón með tölvupósti og pöntunum á vakt.
- Dagleg söluuppgjör og leiðréttingar (no-show o.fl.).
- Framúrskarandi enska skilyrði, önnur tungumál kostur.
- Sterk hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
- Góð tölvuþekking, Outlook og Office.
- Reynsla úr ferðaþjónustu eða verslun mikill kostur.
- Reynsla af bókhalds- eða kassakerfum kostur.
- Gott líkamlegt ástand er nauðsynleg vegna eðli starfsins.
- Fontana útvegar gistingu í íbúðum eða herbergjum í göngufæri frá starfsstöð.
- Niðurgreiddur aðgangur í líkamsrækt.
- Frítt námskeið í fyrstuhjálp.
- Frír hádegismatur.
- Starfsmannafatnaður
Enska
Íslenska










