Eignaleigan
Eignaleigan

Starfsmaður í þrifum og þvottahúsi

Eignaleigan leitar að duglegum og áreiðanlegum starfsmanni til starfa við þrif á húsum í ferðaþjónustu ásamt almennri vinnu í þvottahúsi.

Um starfið:

  • Þrif og frágangur á vönduðum eignum
  • Skipulag og undirbúningur fyrir komu gesta
  • Þvottur, þurrkun og frágangur á rúmfötum og handklæðum
  • Almenn aðstoð í rekstri þvottahúss

Hæfniskröfur:

  • Bílpróf og hreint sakavottorð
  • Samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Sjálfstæði og góð skipulagshæfni
  • Jákvæðni og þjónustulund
  • Reynsla af þrifum eða sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt og lifandi starf í vaxandi fyrirtæki
  • Sveigjanlegan vinnutíma (eftir samkomulagi)
  • Góðan starfsanda og stuðning

Ef þú ert vandvirk(ur), áreiðanleg(ur) og hefur gaman af því að skila af þér vel unnu verki, viljum við endilega heyra frá þér.

Umsókn:
Sendu umsókn og stutta ferilskrá í gegnum Alfreð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þrif og frágangur á vönduðum eignum
  • Skipulag og undirbúningur fyrir komu gesta
  • Þvottur, þurrkun og frágangur á rúmfötum og handklæðum
  • Almenn aðstoð í rekstri þvottahúss
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hellismýri 8F
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar