

Starfsmaður í Smart líkamsrækt, Sunnuhlíð
Við leitum eftir einstaklingum til starfa í Smart líkamsrækt Sunnuhlíð þar sem boðið er upp á frábæra aðstöðu til heilsueflingar fyrir 60 ára og eldri.
Starfið hentar vel fyrir einstaklinga sem stunda nám í sjúkraþjálfun eða íþróttafræði eða hafa annars konar bakgrunn og áhuga sem tengist hreyfingu. Um er að ræða 25% starfshlutfall og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf upp úr miðjum maí en annars eftir samkomulagi. Unnið er mánudaga og fimmtudaga (kl. 15.00 - 18.00), annan hvern þriðjudag (15.00 – 18.00) og annan hvern laugardag (9.00 – 12.00).
Starfið felur í sér að taka á móti gestum Smart líkamsræktar og vera þeim innan handar við æfingar í tækjasal, setja upp æfingaprógrömm og kenna á tækin. Í starfinu felst einnig umsjón með hóptímum eða einstaklingsmiðaðri þjálfun, auk daglegra verkefna svo sem tímabókana, símsvörunar, sölu á líkamsræktarkortum og frágangs.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, fagleg vinnubrögð og góðan liðsanda og hvetjum áhugasama til að senda okkur umsókn.
Helstu verkefni:
- Móttaka og aðstoð við gesti í Smart líkamsrækt
-
Gerð æfingaáætlana
-
Hópþjálfun og/eða einstaklingsmiðuð þjálfun
-
Kennsla á æfingatæki
-
Önnur störf sem viðkoma líkamsræktinni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Nám eða reynsla sem tengist hreyfingu
-
Góð færni í mannlegum samskiptum
-
Jákvæðni og sveigjanleiki
-
Gott vald á íslensku
Upplýsingar:
Kristín Harðardóttir, deildarstjóri sjúkraþjálfunar, veitir frekari upplýsingar um starfið á [email protected] eða í síma 854 8972.
Frekari upplýsingar um Smart líkamsrækt Sunnuhlíð er að finna á https://vigdisarholt.is/sunnuhlid-smartlikamsraekt/
Íslenska










