

Starfsmaður í fiskeldi á Austfjörðum
Kaldvík leitar að starfsfólki í almenn fiskeldisstörf við eldisstöðvar fyrirtækisins á Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði.
Við leitum að duglegum, samviskusömum og jákvæðum liðsauka til að vinna með okkur að fjölbreyttum verkefnum sem fiskeldisfólk sinnir á Austfjörðum.
Starfið felur í sér að sinna almennum eldisstörfum, taka þátt í að ná þeim líffræðilegu og fjárhagslegu markmiðum sem sett eru og jafnframt tryggja öryggi og góða dýravelferð.
Vinnutími er 7 dagar vinna og 7 dagar frí á 12 klukkustunda vöktum.
-
Sinna almennum eldisstörfum
-
Eftirlit með búnaði og bátum
-
Skráningar og skýrslugerð
-
Tryggja öryggi starfsfólks og velferð fisks
-
Tryggja góða umhirðu á vinnustað
Starfsmaður getur einnig þurft að sinna öðrum verkefnum eftir þörfum, svo sem:
-
sækja námskeið
-
aðstoða verktaka
-
aðstoða nýliða
-
hjálpa til á ólíkum starfstöðvum félagsins
-
og önnur tilfallandi verkefni.
- 15 metra skipstjórnarréttindi eða smáskipavélarvarðaréttindi er kostur
-
Reynsla, þekking og skilningur á fiskeldi er kostur
-
Frumkvæði, áhuga og metnað í starfi
-
Góða samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
-
Getu til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
-
Fæði
-
Heilsu- og menntunarstyrkir
-
Góð vinnuaðstaða og tækifæri til útivistar
-
Fjölskylduvænn vinnustaður
Íslenska
Enska










