
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar
Á Jaðri eru 16 hjúkrunarrými og 2 dvalarrými. Aðstaða íbúa og starfsfólks er mjög góð.
Á dvalarheimilinu Jaðri er lögð áhersla á góða hjúkrun, umönnun og að annast heimilisfólk í notalegu og heimilislegu umhverfi sem þeir þekkja og treysta.
Hugmyndafræði Jaðars byggist á að umhyggja fyrir einstaklingnum sé í fyrirrúmi og að sjálfræði hans sé virt í allri umönnun. Mikið er lagt uppúr heimilislegum anda, virðingu fyrir einkalífi heimilismanna og að þeir upplifi öryggistilfinningu. Unnið er útfrá heildrænni umönnun einstaklingsins sem miðar að því að viðhalda lífsgæðum, færni og vellíðan útfrá líkamlegri, andlegri og félagslegri getu.

Starfsmaður í félagsstarf
Dvalar og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn starfskraft í 30% dagvinnu. Möguleiki á sveigjanlegum vinnutíma er fyrir hendi.
Um er að ræða 3ja mánaða reynslutíma þar sem um nýtt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipulagning og framkvæmd félagsstarfs og viðburða
Menntunar og hæfniskröfur:
- Reynsla og áhugi af starfi með eldri borgurum
- Áhugi á málefnum eldri borgara
- Þekkingu á að vinna með hópastarf
- Jákvæðni í starfi og þjónustulund
- Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Samskipta- og samstarfshæfni
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Erla Sveinsdóttir, forstöðumaður í síma 865-1525 eða [email protected]
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 1.apríl 2026.
Ráðið er í stöðuna sem fyrst, eftir samkomulagi
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur1. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hjarðartún 3, 355 Ólafsvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Aðstoð vantar á tannlæknastofu.
Tannlæknastofan Lindarbros

Uppsetningar
Titus

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf á föstudögum og afleysingar.
NPA miðstöðin

Icekorea leitar að sölumanneskju / söluráðgjafa
Icekorea

Aðstoð á iðjuþjálfunardeild
Reykjalundur

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki - Car Mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

Factory cleaning
Dictum