Starfsmaður í eldhús/kaffihús óskast á Mörk hjúkrunarheimili
Mörk hjúkrunarheimili leitar að jákvæðum og glaðlyndum starfsmanni á kaffihús (Kaffi Mörk) og í eldhús heimilisins. Í starfinu felst afgreiðsla á kaffihúsi, taka út tertur og kökur, fylla á eftir þörfum, dagleg og önnur þrif, Í starfinu felst einnig að sinna almennum eldhússtörfum í eldhúsi heimilisins í bland við vaktir á kaffihúsi.
Um er að ræða 50% starf í vaktavinnu. Möguleiki er á 100% starfi í sumar.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Jákvæðni
- Skipulagsfærni
- Góð samskiptafærni
- Sjálfstæð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að heilsustyrk
- Stytting vinnuvikunnar
- Öflugt starfsmannafélag
Greitt er eftir kjarasamningi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Eflingar.
Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Rakel Rós Geirsdóttir, deildarstjóri eldhúsa
rakel.ros.geirsdottir@dvalaras.is
Við hlökkum til að heyra frá þér !