Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Starfsmaður á rannsóknarstofu

Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til starfa á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar.

Starfið felur í sér að sinna fjölbreyttum grunnrannsóknum á steinefnum sem notuð eru í vegagerð. Við leitum að manneskju sem er úrræðagóð, nákvæm og þrautseig. Vinnan getur verið líkamlega krefjandi við meðhöndlun á sýnum.

Rannsóknarstofan fellur undir stoðdeild sem er á viðhalds- og þjónustusviði Vegagerðarinnar og starfa þar um 17 manns.
Starfsstöðin er á höfuðborgarsvæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Grunnrannsóknir á jarðefnum sem notuð eru í vegagerð.
  • Framkvæmd efnis- og  gæðaprófana.
  • Skráning í rannsóknarkerfi Vegagerðarinnar.
  • Umsjón með sýnum og viðhald tækjabúnaðar. 
  • Hluti starfsins felur í sér aðstoð við jarðtæknirannsóknir svo sem borun, jarðsjármælingar og veggreini.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.
  • Háskólamenntun svo sem jarðfræði er kostur eða BA/BS í raungreinum.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Reynsla af teymisvinnu og góð hæfni  til að vinna sjálfstætt skilyrði.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
  • Góð tölvufærni.
  • Góð öryggisvitund.
Auglýsing birt28. október 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar