
Síld og fiskur ehf - Ali
Síld og fiskur ehf. framleiðir og selur matvæli undir vörumerkinu Ali, sem er eitt þekktasta og rótgrónasta vörumerki landsins. Saga Síldar og fisks spannar áratugi og byggir á trausti, gæðum og nýsköpun. Arfur félagsins og ímynd vörumerkisins Ali er mikilvægur þáttur í velgengni fyrirtækisins á íslenskum matvörumarkaði sem einn stærsti framleiðandi landsins á afurðum unnum úr grísakjöti.
Fyrirtækið býr yfir öflugum og góðum tækjabúnaði sem tryggir stöðugleika og gæði í framleiðsluferlinu. Áhersla er lögð á strangar gæðakröfur, matvælaöryggi og skilvirkni í allri vinnslu. Jafnframt er markviss vöruþróun mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækisins, þar sem hlustað er á þarfir og væntingar neytenda með það að markmiði að bjóða upp á nýjar og spennandi vörur neytendum til hagsbóta.
Starfsmaður á lager
Ali leitar eftir metnaðarfullum, dulegum og sjálfstæðum einstaklingi til að sinna starfi á lager fyrirtækisins.
Viðkomandi mun sjá um tiltekt og afgreiðslu á pöntunum, sjá um móttöku og skráningu á lager, sinna almennum lagerstörfum og önnur störf sem kunna að vera falin starfsmanni.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tiltekt og afgreiðsla pantana
- Áfylling og frágangur á vörum í verslunum
- Útkeyrsla og afhending vara til viðskiptavina
- Móttaka, skráning og frágangur á vörum á lager
- Almenn lagerstörf
- Önnur tilfallandi verkefni sem kunna að vera falin starfsmanni hverju sinni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð íslenskukunnátta er kostur
- Góð enskukunnátta skilyrði
- Gilt bílpróf er skilyrði
- Reynsla af lagerstörfum kostur
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Góð skipulagshæfni og nákvæmni í starfi
- Stundvísi, áreiðanleiki og sjálfstæð vinnubrögð
Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur14. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalshraun 9B, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaLagerstörfSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Lagerstarfsmaður óskast hjá Rými
Rými

Leikskólinn Suðurvellir - mötuneyti
Skólamatur

Bifreiðastjóri til framtíðarstarfa
Prentmet Oddi ehf.

Starfsmaður í verslun
Sven ehf

Lyftaramaður í vöruhús Banana ehf / Warehouse Forkilift operator at Bananar ehf
Bananar

Nettó Iðavöllum verslunarstarf
Nettó

Customer Service Assistant
Arctic Adventures

Starfsmaður á kassa & áfyllingar
Melabúðin

Hlutastarf á Selfossi
Flying Tiger Copenhagen

Starfmaður óskast í áfyllingar og útkeyrslu í verslanir
Kólus ehf, sælgætisgerð

Þjónustu og rekstrarfulltrúi
Lova

Framtíðarstarf í vöruhúsi Parlogis
Parlogis