
Melabúðin
Melabúðin er rótgróin kaupmannsbúð með hátt þjónustustig.
Við erum með úrvals kjöt- og fiskborð, mikið úrval grænmetis og erlendra osta. Við bjóðum afar fjölbreytt vöruúrval, bæði sælkeravöru sem og matvöru til daglegrar neyslu.
Við leggjum mikið upp úr íslenskri vöru og nýjungum tengdum henni en jafnframt flytjum við sjálf inn sælkeravörur erlendis frá.
Áherslur okkar liggja í persónulegri þjónustu og breiðu vöruúrvali. Samhliða því veitum við ráðgjöf við val á kjöti og fiski og matreiðslu.
Melabúðin býður upp á lifandi starfsumhverfi en mikið er lagt upp úr áreiðanleika, ríkri þjónustulund og skemmtilegu viðmóti starfsfólks. Við erum rösk og göngum beint og glaðlega til verks og leitum þess sama hjá nýjum samstarfsmönnum okkar.
Melabúðin hefur fengið viðurkenningu hjá CreditInfo sem framúrskarandi fyrirtæki 10 ár í röð og jafnframt verið valið fyrirtæki ársins af Verslunarmannafélagi Reykjavíkur (VR).

Starfsmaður á kassa & áfyllingar
Melabúðin auglýsir eftir starfsmanni í fullt starf.
Við leitum að ábyrgum og glaðlyndum einstaklingi í sælkeraverslun sem leggur metnað sinn í góða þjónustu og er með eitt breiðasta vöruúrval landsins í matvöru.
Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Við í Melabúðinni erum þétt og náið teymi og viljum fá einstakling sem passar í hópinn.
Unnið er á vöktum.
Opnunartími Melabúðarinnar er kl.09-20 á virkum dögum og kl.10-20 um helgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta við viðskiptavini: Aðstoða viðskiptavini við val á vörum og veita upplýsingar.
- Afgreiðsla: Sjá um afgreiðslu og kassavinnu.
- Vöruuppstilling: Uppröðun vara og áfylling hillna og kæla.
- Þrif og umhirða: Tryggja hreinlæti og snyrtimennsku í versluninni.
- Önnur verkefni sem stjórnandi felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
· Metnaður í sölumennsku og upplifun viðskiptavina
· Góð samskiptahæfni: Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum.
· Þjónustulund: Áhugi á að veita framúrskarandi þjónustu.
· Reynsla af þjónustustörfum kostur
· Góð íslenskukunnátta skilyrði
· 18 ára aldurstakmark
Auglýsing birt28. júlí 2026
Umsóknarfrestur7. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaValkvætt
Staðsetning
Hagamelur 39, 107 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Elskar þú snyrtivörur, TikTok og að vinna í verslun?
The Body Shop

Við leitum að starfsfólki í dagvinnu á virkum dögum
Nings

Afgreiðslustarf á höfuðborgarsvæðinu
Bláa sjoppan og Polo

Sölufulltrúi/ Salesperson Fenja - Gifts & Souvenirs
Fenja ehf.

Akureyri - Sölufulltrúi í húsgagnadeild
JYSK

Sölufulltrúi í valvöru - Fullt starf
BAUHAUS slhf.

Sölu- og þjónusturáðgjafi
IKEA

Almenn umsókn fyrir störf á 101 hotel
101 hotel

Bókavörður á Eyrarbakka
Sveitarfélagið Árborg

Bílstjóri snjallverslunar - Krónan Reyðarfirði
Krónan

Leikskólinn Suðurvellir - mötuneyti
Skólamatur

Starfsmaður á lager
Síld og fiskur ehf - Ali