
STOÐ
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.
Stoð sameinaðist systurfélagi sínu MEDOR í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.
Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.
STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Starfsmaður á hjálpartækjaverkstæði
STOÐ leitar að handlögnum starfsmanni til að sinna viðgerðum á hjálpartækjum á verkstæði. Starfið felst í viðgerðum, viðhaldi og yfirferð á fjölbreyttum hjálpartækjum, meðal annars handknúnum og rafknúnum hjólastólum og öðrum búnaði sem auðveldar einstaklingum daglegt líf. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á tæknilegum verkefnum, vinnur sjálfstætt og leggur metnað í vönduð vinnubrögð og góða þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðgerðir og standsetning á hjálpartækjum
- Verkefni tengd varahlutalager
- Þátttaka í öðrum verkefnum hjálpartækjadeildar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla eða menntun á sviði málmiðnaðar, rafiðnaðar, eða öðrum tengdum iðngreinum
- Handlagni og lausnamiðað hugarfar
- Geta og vilji til að starfa í teymi
- Góð almenn tölvukunnátta
- Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Miðhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
HandlagniMannleg samskiptiRafvirkjunSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Vélvirki á vélaverkstæði Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Verkstæði - Kaffiþjónusta Innnes
Innnes ehf.

Gerðu bílaáhugann að starfi
Hekla

Starfsmaður óskast í framleiðslu
Mikra

Reykjavík: Bifvélavirki/vélvirki óskast 🔧
Íslenska gámafélagið ehf.

FJÖLHÆFUR STARFSMAÐUR ÓSKAST TIL MOLTU
Molta ehf.

Bifvélavirkjar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bifvélavirki / bifreiðasmiður í jeppabreytingar óskast
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf