
MT Ísland
## Um MT Ísland
MT Ísland er íslenskt þjónustu- og sérfræðifyrirtæki á sviði raka, myglu, tjóna og viðhalds fasteigna. Fyrirtækið var stofnað árið 2019 af danska fyrirtækinu Midtfyns Totalservice og byggir því á yfir 25 ára reynslu og þekkingu á greiningu og meðhöndlun raka- og mygluskemmda ásamt viðgerðum vegna vatns- og brunatjóna.
Frá stofnun hefur MT Ísland vaxið hratt og í dag starfa um 30 manns hjá og í kringum fyrirtækið á fjölbreyttum fagsviðum. Við leggjum áherslu á að geta veitt viðskiptavinum heildstæða þjónustu – allt frá fyrstu skoðun og greiningu á vandamáli yfir í úrbætur, viðgerðir og frágang.
Meðal verkefna okkar eru raka- og mygluskoðanir, rakamælingar, ástandsskoðanir fasteigna, sýnatökur og greiningar, hreinsun vegna myglu og annarra mengunarefna ásamt viðgerðum og enduruppbyggingu eftir vatns- og brunatjón.
Viðskiptavinir MT Ísland eru einstaklingar, fyrirtæki, tryggingarfélög og opinberir aðilar, auk nokkurra af stærstu fasteigna- og leigufélögum landsins.
MT Ísland er í örum vexti og markmið okkar er að byggja upp öflugt teymi fagfólks og vera leiðandi fyrirtæki á Íslandi á okkar sérsviðum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð, góða þjónustu og að starfsfólk fái tækifæri til að þróast og vaxa með fyrirtækinu.
Starfsfólk í niðurrif og hreinsanir
Vegna aukinna umsvifa hjá okkur þá leitum við af starfsfólki til framtíðarstarfa í hóp öflugra starfsmanna fyrirtækisins. Helstu verkefni eru niðurrif, mygluhreinsun ásamt niðurrifi á asbesti.
Þurfa að geta hafið störf fljótlega.
MT Ísland ehf. er alhliða tjóna- og þjónustufyrirtæki staðsett í Kópavogi. Við sérhæfum okkur í heildarlausnum vegna tjóna af völdum raka og myglu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Asbestnámskeið kostur en ekki skilyrði
Auglýsing birt24. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaValkvætt
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Turnahvarf 6, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í pökkun
Lýsi

Uppsetningar
Titus

Verkstjóri á þjónustustöð, Ísafjörður
Vegagerðin

Reynslumikill starfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Starfsmaður í vöruhúsi Keflavík - 50% starfshlutfall
DHL Express Iceland ehf

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

Starfstækifæri í jarðhitaborunum
Jarðboranir

Starfsfólk óskast á Grundartanga
HRT þjónusta ehf.

Lagerstarfsmaður
Góa-Linda sælgætisgerð

Umsjónarmaður fasteigna og tækja.
Bónus

Smiður óskast
Jökuls Smíði ehf.