
Fjölskyldusvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum. Undir Fjölskyldusvið Múlaþings heyra félagsmál, fræðslumál, íþrótta- og æskulýðsmál.

Starfsfólk í félagsmiðstöðvar
Auglýst er eftir frístundaleiðbeinendum í tímavinnu hjá félagsmiðstöðvum á Djúpavogi og Seyðisfirði.
Viðkomandi starfa með forstöðufólki félagsmiðstöðva og sinna opnunum og öðru tilfallandi starfi á vegum félagsmiðstöðva.
Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Er um að ræða tímavinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun á sviði uppeldis-, tómstunda- og/eða félagsmálafræði eða sambærileg uppeldismenntun mikill kostur.
Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er mikill kostur sem og þekking á málaflokknum æskileg.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára gamall og hafa hreint sakavottorð skv. 10. gr. Æskulýðslaga (lög nr. 70/2007).
Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndur.
Er góð fyrirmynd.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum og öðru starfi eftir atvikum.
Skipuleggur starfið í samráði við forstöðufólk.
Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins.
Sækir viðburði með börnum- og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
Auglýsing birt1. september 2021
Umsóknarfrestur12. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinnaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Stuðningsfulltrúi í frístund á Hvanneyri
Borgarbyggð

Deildarstjóri óskast
Heilsuleikskólinn Skógarás

Leikskólakennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Stuðningsfulltrúi óskast
Helgafellsskóli

Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali

Starfskraftur í frístund í Hjallastefnunni í Hafnarfirði
Hjallastefnan

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Stuðningsfulltrúi í frístund Borgarnesi
Borgarbyggð