
Dekkjahöllin ehf
Dekkjahöllin – traust og reynsla í hjólbarðaþjónustu í yfir fjóra áratugi
Dekkjahöllin er framsækið þjónustufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á hjólbörðum í yfir fjóra áratugi. Fyrirtækið rekur starfstöðvar á Draupnisgötu á Akureyri, Þverklettum á Egilsstöðum, Miðhrauni í Garðabæ, Njarðarbraut í Reykjanesbæ og í Skeifunni og Skútuvogi í Reykjavík. Á öllum stöðvum býðst fyrsta flokks hjólbarðaþjónusta, en til viðbótar eru reknar smurstöðvar á Akureyri og Egilsstöðum og þvottastöð á Akureyri. Dekkjahöllin er jafnframt öflugur innflutningsaðili á hjólbörðum frá Continental, Falken, Yokohama, Sonar og Triangle og þjónustar bæði fyrirtæki og einstaklinga um allt land.
Hjá Dekkjahöllinni starfar samheldinn hópur með mikla reynslu og þekkingu í faginu. Fjölmargir starfsmenn hafa fylgt fyrirtækinu í áratugi og samanlagður starfsaldur þeirra er til marks um gæði mannauðsins. Metnaður, þjónustulund og fagmennska eru lykilatriði í allri starfsemi, enda hefur fyrirtækið ávallt lagt áherslu á fljóta, góða og áreiðanlega þjónustu.
Við leggjum ríka áherslu á að skapa jákvæða og hvetjandi starfsmenningu sem einkennist af samvinnu, gleði og sveigjanleika. Í gegnum tíðina hefur starfsfólkið verið hornsteinn velgengni Dekkjahallarinnar og uppsöfnuð þekking þess tryggir viðskiptavinum faglega ráðgjöf og þjónustu á heimsmælikvarða.
Traust og árangur fyrirtækisins endurspeglast í viðurkenningum sem það hefur hlotið. Dekkjahöllin hefur verið valin framúrskarandi fyrirtæki af Creditinfo frá upphafi mælinga árið 2010 og hefur jafnframt verið útnefnt fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri af Viðskiptablaðinu og Keldunni frá 2017.
Starfsmannafélag fyrirtækisins stuðlar að samheldni og jákvæðri stemningu með reglulegum viðburðum og ferðalögum. Þannig styrkjum við liðsheildina sem gerir Dekkjahöllina að traustum samstarfsaðila bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Starfsfólk á hjólbarðaverkstæði í Reykjavík -
Dekkjahöllin óskar eftir að ráða starfsfólk á hjólbarðaverkstæðin á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felur í sér vinnu við hjólbarðaþjónustu og önnur tilfallandi störf. Umtímabundið starf er að ræða en einnig er möguleiki á framtíðarstarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt vinna við hjólbarðaþjónustu ásamt tilfallandi afgreiðslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi og reynsla af bílaþjónustu kostur
- Stundvísi og hæfni í mannlegum samskiptum
- Reglusemi og öguð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta skilyrði
- 18 ára aldurstakmark
- Bílpróf
Auglýsing birt18. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaValkvætt
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
HjólbarðaþjónustaSmurþjónustaStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Reyndur málmiðnaðarmaður - Experienced welder
Teknís ehf.

Vinna á verkstæði
Aflvélar ehf.

Vélfræðingur/tæknimaður í þjónustuteymi Slippsins Akureyri
Slippurinn Akureyri ehf

Bifvélavirki Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Höfuðborgarsvæði
Frumherji hf

Starfsmaður óskast í Þjónustumiðstöð Hrunamannahrepps
Hrunamannahreppur

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á stórum bifreiðum.
Teitur

Viltu díla við bíla?
Bílaumboðið Askja

Car Cleaning
Cozy Campers Iceland

Rafvélavirki / Rafeindarvirki / Bifvélavirki / Viðgerðamaður, framtíðarstarf
Bílaraf ehf

Bifvélavirki fyrir Max1/Vélaland-Hafnarfjörður
MAX1 | VÉLALAND

Starfsmaður í samsetningu og framrúður
Bílverk BÁ ehf.