Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst

Starf sálfræðings

Auglýst er starf sálfræðings í sálfræðiþjónustu fyrir háskólanema á kennslusviði Háskólans á Bifröst. Leitað er að einstaklingi með faglegan metnað og reynslu á sviði sálfræðiþjónustu og áhuga á að taka virkan þátt í uppbyggingu og þróun sálfræðiþjónustu við nemendur skólans. Háskólinn á Bifröst hefur verið leiðandi í uppbyggingu fjarnáms á háskólastigi hér á landi síðastliðin 20 ár og er með starfsstöðvar á Bifröst og í Reykjavík.

Menntunar- og hæfniskröfur
Framhaldsnám í sálfræði og starfsleyfi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi er skilyrði.
Reynsla af sálfræðiráðgjöf í háskóla er kostur.
Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð er kostur.
Þekking á sálfræðilegum prófum og greiningartækjum er æskileg.
Reynsla af rafrænni ráðgjöf, hópráðgjöf og upplýsingatækni er kostur.
Frumkvæði, drifkraftur og þjónustulipurð.
Skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og samskipta- og samráðsfærni.
Góð íslensku- og enskukunnátta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Einstaklings- og hópmiðuð ráðgjöf og stuðningur.
Námskeiðshald, ráðgjöf og fræðsla til nemenda.
Lesa úr og túlka niðurstöður sálfræðilegra prófa.
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu á kennslusviði.
Frumkvæði í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu við HB.
Samstarf við allar deildir háskólans, náms- og starfsráðgjöf og aðra fagaðila.
Þátttaka í þróunarverkefnum jafnt innan háskólans sem utan.
Auglýsing birt4. október 2021
Umsóknarfrestur15. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bifröst skóli 134783, 311 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar