

Starf í stoðþjónustu tækni- og viðhaldsdeildar HSU
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) leitar að öflugum, þjónustuliprum og ábyrgum einstaklingi í fjölbreytt og mikilvægt starf í stoðþjónustu.
HSU leggur áherslu á fagmennsku, virðingu og gott samstarf þar sem velferð þjónustuþega og starfsfólks er í fyrirrúmi. Markmið starfsins er að tryggja skilvirka móttöku, meðhöndlun og dreifingu á þvotti, vörum, lyfjum og öðrum sendingum, ásamt því að stuðla að hreinu og öruggu umhverfi innan stofnunarinnar.
Starfið tilheyrir tækni- og viðhaldsdeild HSU og er næsti yfirmaður er deildarstjóri fasteigna og rekstrar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka á sendingum, svo sem þvotti, vörur og lyf
- Afhending, dreifing og eftirlit sendinga og pantana
- Yfirsýn yfir starfsmannafatnaði, þvotti og pöntunum
- Undirbúningur sendinga frá stofnun svo sem þvottur, vörur og fleira
- Þrif á herbergjum og sameiginlegum rýmum
- Stuðla að snyrtilegu og öruggu umhverfi
- Önnur tilfallandi verkefni í samráði við næsta yfirman
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn tölvukunnátta er skilyrði
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
- Samviskusemi, áreiðanleiki og ábyrgðarkennd
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í samskiptum
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Góð líkamleg geta (starfið felur í sér hreyfingu og lyftingar)
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur11. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Árvegur 161836, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Bílaþvottur/Carwash-Kef Airport
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Newrest - Kvöld og næturþrif / Night Cleaning Operative
NEWREST ICELAND ehf.

Houskeeping Attendants
Black Sand Hotel

The Embassy of Denmark is seeking a Housekeeper with documented experience
Danska Sendiráðið

Þrif og umhirða / Housekeeping
Reykjaböð

Cleaning Camper Vans
Campeasy

HOUSEKEEPING
Konvin Hotel By Keflavik Airport

Helgarvaktir, sumarvinna á kaffihúsinu Grænu könnunni og í verslun á Sólheimum í Grímsnesi
Sólheimasetur ses

Aðstoðarmatráður í Skólamötuneyti Fáskrúðafjarðar
Leikskólinn Kæribær

Skólaliðar í Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli

Fjöllbreytt störf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf

Hreinsitæknir / Manufacturing Cleaning Specialist
Alvotech hf