First Water
First Water
First Water

Starf í gæðadeild

First Water leitar að drífandi og sjálfstæðum aðila til að annast vatnsgæðamælingar í eldiskörum og borholum á starfsstöð félagsins í Þorlákshöfn.

Starfið felur í sér að sinna eftirliti með vatnsgæðum á öllum stigum framleiðslunnar, í borholum, í eldiskerfum og í frárennsli í samræmi við verklag fyrirtækisins. Prófanir, kvörðun og eftirlit með mælitækjum og búnaði eru mikilvægur þáttur í starfinu.

Starfið felur í sér að skrá, skjala og halda utan um niðurstöður mælinga, túlkun þeirra og miðlun til samstarfsfólks. Viðkomandi tekur einnig þátt í að þróa verklag samfara auknum umsvifum framleiðslunnar.

Vinnutími er 8-16

Hæfnikröfur

  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Geta til að tileinka sér nýja þekkingu
  • Frumkvæði
  • Geta til að túlka og greina niðurstöður
  • Hæfni til að setja fram niðurstöður mælinga á skýran og skiljanlegan hátt
  • Geta til að kynna upplýsingar í ræðu og riti.

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Ásbjörnsdóttir, gæðastjóri, [email protected]

Umsóknafrestur er til og með 22.mars. Byrjað verður að vinna úr umsóknum um leið og þær berast.

First Water er framsækið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi, og nýtir til þess náttúruauðlindir Íslands á sjálfbæran hátt. Lykillinn að velgengni félagsins mun liggja í mannauði þess og leggur félagið því ríka áherslu á öflugan hóp reynslumikils og drífandi starfsfólks.

Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur22. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þorlákshöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar