
Náttúrufræðistofnun
Á Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi á stofnuninni er góður og er leitast við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru fimm, í Garðabæ, á Akranesi, við Mývatn, á Breiðdalsvík og Akureyri.
Starf í eldhúsi og móttöku
Náttúrufræðistofnun auglýsir laust til umsóknar 60% starf í eldhúsi og móttöku á starfsstöð stofnunarinnar í Garðabæ. Starfið felst í umsjón með framreiðslueldhúsi hússins ásamt innkaupum og umsjón með rafrænni móttöku og póstsendingum. Auk þess mun viðkomandi taka þátt í og aðstoða við skipulagningu viðburða og funda á vegum stofnunarinnar í samráði við yfirmann.
Leitað er að þjónustuliprum og jákvæðum einstaklingi með létta lund sem getur unnið sjálfstætt.
Starfshlutfall er 60% og vinnutími er frá kl.9:30 til 14:00 alla virka daga.
Starfið heyrir undir sviðsstjóra rekstrar og mannauðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með eldhúsi, morgunkaffi, framreiðslu og pöntun hádegisverðar ásamt frágangi
- Innkaup og pantanir á kaffistofu og skrifstofu
- Umsjón með sendingum til og frá stofnun
- Umsjón með rafrænni móttöku
- Umsjón með sameiginlegum rýmum
- Aðstoð við skipulagningu viðburða og funda á vegum stofnunar í samráði við yfirmann
- Tilfallandi verkefni á sviðinu að ósk sviðsstjóra eða önnur verkefni í samráði við hann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn starfsreynsla og þekking sem nýtist í starfi.
- Gild ökuréttindi
- Góð samskiptafærni
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Geta til að vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar og tímaplani.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
- Hreint sakavottorð
Auglýsing birt7. júlí 2026
Umsóknarfrestur16. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leitum að uppvaskara / looking for dishwasher
Apotek kitchen + bar

Starfsmaður í eldhús/ Kitchen staff Smárataorg
Metro

Food Truck Staff Full-Time
South Iceland

Lodge Cook / Chef
Deplar Farm - Eleven Experience

Þjónustufulltrúi á þjónustusvið Hyundai
Hyundai

We are seeking cooker to join our team
Flame Restaurant

Matreiðslumaður / Matráður óskast fyrir mötuneyti starfsmanna IKEA
IKEA

Heimavist MA og VMA leitar að matráð / matartækni til starfa í mötuneyti.
Heimavist MA og VMA

Ártúnsskóli - mötuneyti
Skólamatur

Leikskólinn Stakkaborg - mötuneyti
Skólamatur

Kokkur óskast í fullt starf – The Hill Hótel, Flúðum
The Hill Hótel at Flúðir

Móttaka - Receptionist
Hótel Höfn