

Matreiðslumaður / Matráður óskast fyrir mötuneyti starfsmanna IKEA
IKEA leitar að reyndum matreiðslumanni/matráð með jákvætt hugarfar til að ganga til liðs við frábært teymi sem starfar í mötuneyti starfsfólks IKEA.
Hjá IKEA starfar fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur daglega að framgangi hugmyndfræði IKEA “Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flest”
· Undirbúningur, matreiðsla og framleiðsla í mötuneyti starfsmanna.
· Matseðlagerð
· Gæðaeftirlit á matvælum
· Önnur tilfallandi störf
· Menntun í matvælaiðnaði eða öðru sambærilegu er skilyrði
· Starfsreynsla úr matvælageiranum er skilyrði
· Þekking á matvælaöryggi og almennt góðum starfsháttum við framleiðslu matvæla
· Sjálfstæði og drifkraftur
· Lipurð í samskiptum og jákvæðni
· Færni til að vinna undir álagi
· Almenn tölvukunnátta
· Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu.
· Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum.
· Aðgengi að sumarbústað til einkanota.
· Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti og salatbar.
· Ávextir og hafragrautur í boði.
· Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá utanaðkomandi fagaðila.
· Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.
· Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.
· Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi.
· Skemmtilegir vinnufélagar.
· Afsláttur af IKEA vörum.
Enska
Íslenska










