Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Starf í afgreiðslu vöruhúss Innnes

Innnes ehf. leitar af öflugum aðila í fullt starf í afgreiðslu í nýju og glæsilegu vöruhúsi fyrirtækisins að Korngörðum 3 í Reykjavík. Um er að ræða fullt starf til framtíðar og þarf viðkomandi aðili að tala mjög góða íslensku.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við viðskiptavini vöruhússins
  • Þjónusta við aðrar deildir Innnes sem eiga erindi í vöruhúsið
  • Móttaka gesta og þjónustuaðila vöruhússins
  • Móttaka sendinga
  • Önnur tilfallandi verkefni í vöruhúsi

Hæfniskröfur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð þjónustulund
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Stundvísi, frumkvæði, dugnaður og nákvæmni
  • Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
  • Reyklaus (Innnes er reyklaus vinnustaður)

Vinnutími er 07:45-16:15 alla virka daga.

Innnes er eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins í matvöru og víni og leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini sína með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.

Boðið er upp á fyrirmyndar vinnuumhverfi þar sem boðið er upp á mötuneyti með heitum mat og ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, öflugt félagslíf og fleira. Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv.

Umsóknarfrestur er til og með 14.06.2026.

Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar