
DHL Express Iceland ehf
Alþjóða hraðsendingar og fraktsendingar um allan heim í lofti, á sjó, með bílum og lestum. Vöruhúsalausnir, allt frá pökkun til geymslu, póstsendingar um allan heim, sem og aðrar sérhæfðar lausnir á sviði vörustjórnunar - DHL færir þér úrval flutningsleiða og yfirburði heim að dyrum.
Að starfa fyrir DHL þýðir að taka ábyrgð, sigrast á ögrandi áskorunum og vaxa og þroskast sem hluti af fjölbreyttu alþjóðlegu starfsliði.
Nýttu þér margskonar spennandi möguleika á starfsframa til að skila góðum árangri með okkur og vera hluti af stærsta flutningafyrirtæki í heimi.
DHL býður fjölbreytt störf með mikla möguleika á öllum starfsþrepum í öllum heimshlutum. Sem starfsmaður hjá okkur færðu tækifæri til að móta með góðri vinnu í góðum hópi þína eigin framtíð bæði í starfi og leik. Saman myndum við fyrirtæki sem við getum verið virkilega stolt af.

Þjónustufulltrúi í fraktdeild - Sumarstarf
DHL Express Iceland ehf óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa í fraktdeild fyrirtækisins á starfsstöð sinni í Ármúla 3, Reykjavík.
Leitað er að metnaðarfullum, árangursdrifnum og sjálfstæðum einstakling með ríka þjónustulund sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni.
Um 100% starfshlutfall er að ræða og er vinnutíminn annars vegar frá kl: 7:00 -15:00 eða kl: 8:00 - 16:00, eftir samkomulagi.
Um er að ræða sumarstarf til 31. ágúst 2026 og óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skráning gagna í sjófrakt.
- Aðstoða við tilboðsgerð og sölu til viðskiptavina
- Sjá um að skipuleggja akstur á sjósendingum
- Almenn skjalavinna
- Aðstoð við tollafgreiðslur
- Aðstoð við símsvörun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð samskiptafærni, sjálfstraust og frumkvæði í starfi
- Góð tölvufærni og skipulagshæfileikar
- Hreint sakavottorð skilyrði
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi í Icewear Stykkishólmi
ICEWEAR

Skrifstofustarf hjá flutningafyrirtæki
Fraktlausnir ehf

Sérfræðingur á Hvammstanga
Vinnumálastofnun

Sumarstörf á Keflavíkurflugvelli
Hertz Bílaleiga

Sölumaður
Bílasala Reykjavíkur

Þjónustufulltrúi varahluta
BL ehf.

Akureyri: Hluta- og helgarstarf
Húsasmiðjan

Sölu- og þjónusturáðgjafi - Verslun
Sýn

Sölumaður á fyrirtækjasviði
SS - Sláturfélag Suðurlands

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust

Administrative employee
Spes Seafood ehf.

Sérfræðingur í lánavinnslu
Kvika banki hf.