Landbúnaðarháskóli Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands
Landbúnaðarháskóli Íslands

Starf fjármeistara Hvanneyrarbúsins ehf

Starf fjármeistara Hvanneyrarbúsins ehf við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er laust til umsóknar.

Hlutverk Hvanneyrarbúsins er búrekstur í þágu kennslu- og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands. Félagið á að skapa aðstöðu fyrir nemendur og starfsmenn LbhÍ og samstarfsaðila þeirra til fræðslu og rannsókna sem tengjast sauðfjárrækt, nautgriparækt, jarðrækt, auðlindanýtingu og umhverfisvernd. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af teymi LbhÍ sem hefur umsjón með rekstri Hvanneyrarbúsins í samráði við bústjóra. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með allri starfsemi á fjárbúinu Hesti
  • Umsjón með ræktunarstefnu í samráði við bústjóra, umsjón með lögbundnu hjarðskýrsluhaldi og öðru skýrsluhaldi fyrir rannsóknir og kennslu
  • Umsjón með aðbúnaði búfjár og viðhaldi á aðstöðu
  • Vélavinna við gegningar, heyskap, jarðrækt og fleira
  • Skipulagning og umsjón sauðburðar
  • Þátttaka í rannsóknum og mælingum
  • Móttaka nemenda, kennara og tilfallandi gesta
  • Virk þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýsköpunar í búrekstri sem og önnur störf er tilheyra búrekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Búfræðimenntun og/eða BS próf í búvísindum eða öðrum landbúnaðarfræðum
  • Önnur iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af sauðfjárrækt og vélavinnu
  • Sjálfstæð, skipulögð og snyrtileg vinnubrögð
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Auglýsing birt12. október 2024
Umsóknarfrestur24. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Hvanneyri, 311 Hvanneyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (1)