

Stafrænn vöruhönnuður - Bláa Lónið
Bláa Lónið leitar að reyndum UX/UI-hönnuði með brennandi áhuga á notendamiðaðri hönnun, vönduðum stafrænum lausnum, stafrænni vöruþróun og hönnunarkerfum.
Viðkomandi mun hanna veflausnir, bókunarkerfi og leiða hönnunarkerfi fyrir Bláa Lónið og tengd vörumerki – í nánu samstarfi við vöruteymi Digital solutions and data og aðrar deildir.
Hjá Digital and data starfar fjölbreyttur hópur fagfólks sem vinnur þvert á fyrirtækið að því sameiginlega markmiði að efla stafræna upplifun gesta Bláa Lónsins og annarra áfangastaða fyrirtækisins víða um landið. Við vinnum í þverfaglegum teymum og nýtum öfluga hönnun, notendamiðaða nálgun og nýjustu tækni til að skapa heildstæða og eftirminnilega stafræna upplifun.
Helstu verkefni:
- Hönnun og þróun notendaviðmóts fyrir bókunarflæði og þjónustuvefi
- Uppbygging, viðhald og þróun hönnunarkerfa sem tryggja samræmi í allri stafrænni hönnun fyrirtækisins
- Notendarannsóknir, prófanir og ítranir á stafrænni upplifun gesta
- Þróun og einföldun hönnunarflæða sem styðja við hraða og skilvirka þróun
- Þátttaka í stefnumótun stafrænnar upplifunar og nýsköpunar innan fyrirtækisins
- Náið samstarf við hönnuði, þróunarteymi, markaðs- og vörustjóra við þróun nýrra lausna og umbætur á núverandi miðlum
Við leitum að einstaklingi sem hefur:
- 5+ ára reynslu í UX/UI-hönnun
- Reynslu af uppbyggingu og notkun hönnunarkerfa
- Góða kunnáttu í Figma og reynsla af hönnunarferlum í þverfaglegum teymum
- Góða hæfni í að miðla hugmyndum og kynna hönnun á skýran hátt
- Góða þekkingu á aðgengismálum, flæði og notendaupplifun
- Fylgst með þróun og straumum í UI/UX og kemur með nýjar hugmyndir að umbótum og þróun
- Kostur er að viðkomandi hafi grunnskilning á HTML/CSS og auga fyrir tæknilegri útfærslu
Bláa Lónið er lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem áhersla er lögð á sífellda þróun og nýsköpun. Í boði er starf á vinnustað sem býður upp á fjölbreyttar og krefjandi áskoranir. Einnig eru ýmis fríðindi í boði, eins og heilsuræktarstyrkur, þátttaka í einu öflugasta starfsmannafélagi landsins og fleira. Viðkomandi mun hafa starfsstöð í Urriðaholti í Garðabæ.
Umsóknarfrestur er til og með 26.09.2025
Nánari upplýsingar veitir: [email protected]

