
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Spennandi starf stuðningsfulltrúa í nýjum íbúðakjarna Sólvallagötu 79
Velferðarsvið óskar eftir stuðningsfulltrúum í nýjan íbúðakjarna Sólvallagötu 79. Um er að ræða vaktavinnu, dag, kvöld nætur og helgarvaktir, þar sem unnið er aðra hverja helgi.
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Íbúðakjarni fyrir fatlaða Sólvallagötu 79 óskar eftir stuðningsfulltrúum. Þjónustan miðar að því að efla færni og auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg en ekki skilyrði.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Umhyggja og þolinmæði.
- Bílpróf kostur
- Íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.
Fríðindi í starfi
- Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- 36 stunda vinnuvika
Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiAðlögunarhæfniFrumkvæðiHeiðarleikiMannleg samskiptiÞjónustulundÞolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Hey! Laust sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi í íbúðarkjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimahjúkrun flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Óska eftir aðstoðarkonum í sveigjanlegt hlutastarf
NPA miðstöðin

Starfsmaður í heimaþjónustu á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á kvöld og helgarvaktir
NPA miðstöðin

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í aukastarf
NPA miðstöðin

Sumarstörf á velferðarsviði Akureyrarbæjar
Akureyri

Hey! Laust sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

Starfsfólk í heimaþjónustu
Borgarbyggð

Viltu vinna sem aðstoðarkona fyrir ungmenni?
K8

Sumarafleysing í heimaþjónustu í Garðabæ
Dagar hf.

Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona - vaktavinna
Aðstoð óskast